Upp­gjörið: Njarð­vík - Tinda­stóll 103-97 | Njarð­vík tók for­ystuna í ein­vígi sínu við Tinda­stól

Hjörvar Ólafsson skrifar
Valur-Njarðvík
vísir/anton

Njarðvík bar sigurorð af Tindastóli, 103-97, þegar liðin leiddu saman hesta sína í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í IceMar-höllinni suður með sjó í kvöld.

Leikurinn var í járnum í fyrsta leikhluta. Tindastóll skoraði síðustu sex stig leikhlutans og staðan var jöfn 26-26 eftir fyrsta fjórðung.

Njarðvík byrjaði hins vegar annan leikhluta af meiri krafti og byggði þar hægt og bítandi upp þægilegt forskot. Þar munaði mestu um frammistöðu Brittany Dinkins sem skoraði 21 stig í fyrri hálfleik.

Þegar flautan gall til merkis þess að fyrri hálfleik væri lokið var Njarðvík 59-46 yfir. Danielle Rodriguez var Dinkins til halds og trausts í sóknarleiknum hjá Njarðvík og setti 14 stig fyrstu tvo leikhlutana. Þá setti Sara Björk Logadóttir niður þrjú fyrstu þrggja stiga skot sín.

Madison Anne Sutton fór fyrir Tindastólsliðinu framan af leiknum og var komin með 20 stig í hálfeik. Marta Hermida fór vel af stað í leiknum og lagði til 11 stig í fyrri hálfleiknum.

Leikmenn Tindastóls mættu afar grimmir inn í seinni hálfleikinn og Madison Anne Sutton minnkaði muninn í fimm stig, 63-58 í upphafi þriðja leikhluta. Þá náði Njarðvíkurliðið vopnum sínum á nýjan leik og heimakonur settu niður sex stig í röð.

Fjórða þriggja stiga karfa Söru Bjarkar í leiknum breytti síðan stöðunni í 72-61 Njarðvík í vil. Njarðvík fór svo með 79-71 forystu inn í fjórða og síðasta leikhlutann.

Tindastóll andaði ofan í hálsmál Njarðvíkur í fjórða leikhluta en náði aldrei að snúa taflinu sér í vil með því að jafna eða komast yfir. Sara Björk setti niður stórt skot þegar hún sallaði niður fimmtu þriggja stiga körfu sinni undir lok leiksins og kom Njarðvík í 101-95. 

Njarðvík fór að lokum með sex stiga sigur af hólmi og leiðir þar af leiðandi 1-0 í einvígi liðanna. 

Einar Árni fer yfir málin með sínum konumVísir/Jón Gautur

Einar Árni: Sýndum aga og skynsemi í lokin

„Þetta var eins og við var að búast hörkuleikur sem var jafn og spennandi allt til loka. Þetta er held ég bara forsmekkurinn af því sem að koma skal í þessu einvígi,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. 

„Við náðum góðum kafla í öðrum leikhluta þar sem fóru saman öfugur varnarleikur og skilvirkur sóknarleikur. Við hleyptum þeim svo inn í leikinn aftur í þriðja leikhluta en náðum upp aga og skynsemi í okkar leik í fjórða leikhluta sem skilaði sigrinum í höfn,“ sagði Einar Árni enn fremur. 

„Sara Björk kom með mjög flotta innkomu af varamannabekknum og þriggja stiga karfan hans undir lokin var gulls ígildi. Það er hörku barátta fram undan og við þurfum að halda áfram að ná upp topp frammistöðum til þess að ná í þá sigra sem þarf að sækja,“ sagði hann um framhaldið. 

Israel Martin: Smáatriði sem skildu liðin að 

„Heilt yfir er ég bara mjög sáttur við spilamennsku míns liðs og við vorum ekki langt frá því að ná að bera sigur úr býtum. Það voru smáatriði sem skildu liðin að í þessum leik. Nú förum við yfir leikinn og sjáum hvað við þurfum að laga,“ sagði Israel Martin, þjálfari Tindatóls, sáttur þrátt fyrir tapið.  

„Við hefðum þurft aðeins fleiri fráköst og aðeins meiri klókindi í varnarleiknum. Við gerðum vel í sóknarleiknum en þurfum að spila aðeins betri vörn til þess að komast yfir hjallann og hafa betur,“ sagði þjálfarinn þar að auki. 

„Það var vont að missa Mörtu Hermidu út af með fimm villur. Marta var búin að vera spila vel og það hefði verið gott að hafa hana á ögurstundu. Við getum tekið fullt af jákvæðum hlutum með okkur í næsta leik og förum brattar inn í þann leik,“ sagði hann um næsta leik liðanna. 

Israel Martín er þjálfari TindastólsVísir/Anton Brink

Atvik leiksins

Sara Björk kórónaði flotta frammistöðu sína í leiknum með því að setja niður mikilvægt þriggja stiga skot undir lok leiksins sem fór langleiðina með það að geirnegla sigur Njarðvíkur. Það var fimmta þriggja stiga karfa hennar í leiknum en hún skoraði alls 17 stig í leiknum. 

Stjörnur og skúrkar

Brittany Dinkins var stigahæst hjá Njarðvík með 35 stig en auk þess sendi hún sjö stoðsendingar. Dinkins fékk dygga hjálp frá Danielle Rodriguez sem setti niður 24 stig, tók 11 fráköst og mataði samherja sína með níu stoðsendingum. 

Eins og áður segir kom Sara Björk með drjúgt framlag af varamannabekknum en hún var funheit fyrir utan þriggja stiga línuna. Þá sérstaklega úr hornunum í IceMar-höllinni. 

Leikmenn Njarðvíkur áttu í erfiðleikum með Madison Anne Sutton undir körfunni en hún skoraði 35 stig. Marta Hermida skilaði 25 stigum á töfluna og það reyndist Tindastóli dýrkeypt af missa hana af velli með fimm villur um miðjan fjórða leikluta. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Bjarki Þór Davíðsson, Davið Kristján Hreiðarsson og Sófus Máni Bender, höfðu góð tök á þessum leik og fá sjö í einkunn fyrir röggsama dómgæslu og styrka stjórn sína á leiknum.  

Stemming og umgjörð

Það var feykilega góð stemming í IceMar-höllinni í kvöld og bæði lið fengu ríkulegan stuðning úr stúkunni. Úrslitakeppnin er farin af stað og stuðningsmenn liðanna komnir í gírinn. Leikurinn í kvöld gefur góð fyrirheit fyrir framhaldið og mikið stuð var bæði innan vallar sem utan. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira