„Hvað er að lögreglunni?“ Birgir Olgeirsson skrifar 30. mars 2026 11:22 Sveinn Andri Sveinsson er segir augljóst að lögreglan ráði ekki við þau völd sem henni eru falin. Vísir/vilhelm Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður og verjandi Quang Le, segir lögreglu hafa farið langt yfir strikið þegar ráðist var inn á heimili 18 ára sonar Quang Le og 78 ára móður hans klukkan 6:30 á föstudagsmorgun. Hann segir að tengsl fólksins við Quang Le réttlæti ekki aðgerðir af þessu tagi. „
Það liggur fyrir að kæra þessa stjórnendur lögreglunnar,“ segir Sveinn Andri. Rannsókn lögreglu varði kaupsamning milli piltsins og ömmu hans en Sveinn Andri segir að farið hafi verið inn á heimili þeirra með miklum tilburðum, brotnar upp dyr og beitt ljósum og öskrum. Þeim hafi verið haldið í 12 klukkustundir áður en þau voru látin laus. Sveinn Andri gætir ekki hagsmuna fólksins en hann muni í samstarfi við verjendur þeirra leggja fram kæru á hendur lögreglunni vegna þessarar aðgerðar. Mál Quang Le réttlæti ekki þessar aðgerðir Hann segir ekkert í stöðunni hafa kallað á slíka framgöngu og að lögreglan hefði einfaldlega getað kallað fólkið inn til skýrslutöku eða rætt við það með eðlilegum hætti. Quang Le hefur verið til rannsóknar frá árinu 2023 vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi. Hann sat lengi í gæsluvarðhaldi eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu í mars 2024 en var síðar látinn laus og settur í farbann. Sveinn Andri segir hins vegar að það mál verði ekki notað sem réttlæting fyrir því að fara með þessum hætti gegn syni hans og móður. „Brjóta fólk niður andlega“ Sveinn Andri segir jafnframt að ekki verði horft fram hjá því að um sé að ræða fólk af víetnömskum uppruna, þótt það sé íslenskir ríkisborgarar. Að hans mati sýni málið hvernig kerfið taki öðruvísi á lituðu fólki en öðrum. „Þetta var offari, show-off og sýndarmennska til að brjóta fólk niður andlega,“ segir hann og bætir við: „Hvað er að lögreglunni? Þeir stjórnendur sem tóku þessa ákvörðun virðast, að mínu mati, fullkomlega ófærir um að fara með það vald sem lögreglan hefur. Ef löggjafinn ætlar að veita lögreglunni auknar valdheimildir verður fyrst að tryggja að þeir sem fara með valdið kunni að beita því af ábyrgð. Mér sýnist þessir millistjórnendur einfaldlega ekki ráða við þau völd sem þeir hafa nú þegar.“ Ekki náðist í lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna þessa máls en haft var eftir henni á vef Ríkisútvarpsins um helgina að ekki væri hægt að staðfesta að aðgerðirnar tengdust meintum brotum Quang Le. Lögreglan heldur því fram að hún hafi starfað innan valdheimilda viið handtökuna og gætt meðalhófs.
Mál Quangs Le (Davíðs Viðarssonar) Lögreglumál Mest lesið Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Fleiri fréttir Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Sjá meira