Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Samúel Karl Ólason skrifar 25. mars 2026 10:17 Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti óhefðbundna ræðu á þinginu í gær þar sem hann setti sig í spor vinsæls menntaskólastráks. Óhætt er að segja að ræðan sé ádeila á Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, og sagðist Jón, í karakter, vita betur en allir aðrir, vera stjórnlyndur og sagðist vera búinn að fá nóg af hinum krökkunum í skólanum.
Í pontu sagðist Jón Pétur vera forseti nemendafélagsins og æðislegur. Hann sagðist búinn að fá nóg af hinum krökkunum í skólanum. Þau væru pirrandi. „Vita þau ekki að þetta er skólinn minn? Sumir segja að ég sé stjórnlyndur en, með leyfi virðulegs forseta: Döh. Það er ekki mér að kenna að ég viti allt miklu betur en þið, ég meina, ég var yfir sjoppunni á böllum í grunnskóla,“ sagði Jón Pétur. Hann sagðist meðvitaður um að hann hefði ætlað að bjóða krökkunum upp á fría ávexti í frímínútum og lækka verð á böll. Hann vissi þó ekki hvernig það ætti að ganga eftir. „Þetta kostar allt peninga. Ég vissi það ekkert. Ég er með plan og það mun ganga.“ Jón Pétur sagði þá að hinir nemendurnir ættu að vita að planið yrði erfitt fyrir hann en enn erfiðara fyrir þá. „Þið verðið bara að skilja það. Hvers vegna komið þið ekki bara með ávexti sjálf ef þið viljið þá svona mikið? Ég vissi ekkert að það kostar heilmikið að halda ball. Þetta er ykkar skemmtun. Þið borgið.“ Hann sagði alla fyrri forseta nemendafélagsins hafa verið ömurlega. Þeir hafi ekki einu sinni kunnað að birta sjálfur á Instagram eða nota ný flott orð. „Ég er t.d. yfirburðagáfusjarmi. Jörð til allra. Halló! Ég er orðinn pirripú. Þið viljið ekki hafa mig þannig, trúið mér.“
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira