Stjarna úr Married at First Sight látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. mars 2026 14:40 Mel Schilling lést þriðjudaginn 24. mars 2026 eftir erfiða baráttu við krabbamein. Sambandsráðgjafinn Mel Schilling, sem öðlaðist frægð vegna þátttöku sinnar í áströlsku útgáfu raunveruleikaþáttanna Married at First Sight, er látin, 54 ára að aldri eftir glímu við krabbamein. „
Melanie Jane Brisbane-Schilling lést friðsamlega í dag, umkringd ást,“ sagði Gareth Brisbane, eiginmaður Schilling, í tilkynningu í dag. Schilling hafði glímt við krabbamein síðustu tvö ár og greindi sjálf frá því fyrr í mánuðinum að krabbameinið hefði dreifst yfir á vinstri hluta heila hennar og það væri ekkert sem læknarnir gætu gert til að meðhöndla meinið. „Þegar ég hélt að krabbameinið hefði svipt hana færninni til að tala, dró hún mig nær sér og hvíslaði skilaboð til mín og Maddie sem mun halda mér gangandi það sem eftir lifir ævinnar,“ sagði Gareth og vísaði þar til dóttur þeirra hjóna, Madison. Schilling fæddist 13. október 1971, var með BA-gráðu í sálfræði frá Deakin-háskóla, diplómagráðu í sálfræði frá Melbourne-háskóla og sérhæfði sig í sambands- og hjónaráðgjöf. Melanie var kynnir og sambandsráðgjafi í áströlsku útgáfunni af Married at First Sight í sex þáttaraðir frá 2019 til 2025 og vakti þar athygli fyrir „beinskeytta en blíða nálgun“. Hún færði sig síðan yfir í bresku útgáfu þáttanna og var þar frá 2021 til 2024. Auk þess varð hún vinsæll gestur í bresku og áströlsku morgunsjónvarpi sem sérfræðingur í málefnum ástarinnar.
Ástralía Andlát Raunveruleikaþættir Bíó og sjónvarp Bretland Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Fleiri fréttir Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira