Skálmöld gæddi sér á hráefni sögulegs „ógeðsdrykkjar“ Þórarinn Þórarinsson skrifar 24. mars 2026 07:32 Snæbjörn og Þráin Árni komust heldur betur í brimsalt og súrt á Akureyri. Mynd/Facebook Skálmaldarmönnunum Snæbirni Ragnarssyni og þó helst Þráni Árna Baldurssyni leiðist ekki að borða mat sem fólki býður oftar en ekki við. Þeir komust því heldur betur í feitt þegar þeim var boðið til alvöru „súrströmming-veislu“ á Akureyri. Þar sporðrenndu þeir glaðir aðalhráefninu í sögulegasta ógeðsdrykk 70 mínútna.
Skálmöld tróð upp á Græna hattinum á Akureyri um helgina og fengu einnig óvænt, en að því er virðist, kærkomið tækifæri til þess að bragða, eftir öllum kúnstarinnar reglum, á þeim alræmda sænska rétti sem kenndur er við „surströmming“.„Þetta var klárlega eitthvað nýtt fyrir okkur þó þessir fiskar væru alls ekki nýir. Þeir voru mjög gamlir. Það er gott að vera búinn að smakka og ég held ég þurfi ekki meira svona,“ skrifaði Snæbjörn á Facebook.Báðir hafa gefið stutta skýrslu, á samfélagsmiðlinum, um matarævintýrið fyrir norðan og ekki annað að sjá en þeir séu ánægulegri reynslu ríkari eftir ferðina norður. Skemmtileg upplifun Þegar Snæbjörn, eða Bibbi eins og hann er kallaður, er spurður nánar út í kynni þeirra félaga af súru síldinni sænsku skrifar hann ævintýrið aðallega á Þráin Árna. „Hann er svona svolítið annálaður aðdáandi þess að borða mat sem sumir myndu segja að væri ónýtur. Er mikið í svona alls konar þjóðlegu og fer oft svolítið hátt með það.“Sjálfur segist Bibbi hafa fengið að koma með Þráni þegar áhangendur hljómsveitarinnar höfðu samband við hann og spurðu hvort hann vildi koma og smakka surströmming. Sænska síldin súra sem kennd er við Oskars er vel þekkt þótt bragðgæðin séu ef til vill í besta falli umdeild utan Svíþjóðar. „Við sögðum bara „já“ og við fórum bara í heimahús á Akureyri. Þetta eru Svíar sem buðu okkur þannig að þetta var allt saman alveg eftir hefðinni. Alveg upplifun og ansi skemmtilegt. Sérstök ýldustemning Bibbi segist þó reyndar „alveg vera með“ Þráni í þessu og þeir þiggi því að sjálfsögðu slík boð. „Ég borða hákarl og finnst þetta gott almennt.“ Surströmming er gerjuð, léttsöltuð Eystrasaltssíld sem á sér langa sögu í sænskri matarmenningu þar sem hún hefur átt sinn sess í það minnsta frá 16. öld. Síldin gerjast með sjálfsmeltingu, eins geðslega og það nú hljómar en í ferlinu verða til lyktsterkar sýrur, þar á meðal smjör- og ediksýra. Nú er hákarlinn síður en svo allra en er surströmming þá á einhvers konar hástigi í þessum efnum? „Þetta er góð spurning en ég held að þetta snúist bara rosa mikið um hvað maður fær í uppeldinu. Ég hef borðað hákarl frá því að ég var krakki en ekki til dæmis skötu. Mér finnst hún bara svona „meh“, ekkert vond og get alveg borðað hana en ég fæ ekkert út úr því. Fikt strákanna í 70 mínútum með surströmming fyrir rúmum tveimur áratugum endaði með uppköstum. Og þetta er bara einhvern veginn alveg önnur útgáfa af þessu og maður finnur það strax og búið er að opna dósina að þetta er ekki þessi sama kæsing og við erum vön. Þetta verður meira svona eins og einhver ýldustemming. Velgja einhvern veginn.“ Ekki gott, gaman að smakka Bibbi bætir við að hann sé almennt ekkert klígjugjarn. „Mér fannst gaman að borða þetta. Með minn bakgrunn og finnast hákarl góður þá skil ég alveg að einhverjum finnist þetta gott.Ég hef smakkað allt þetta færeyska dót, skerpukjöt, hvalspikið og það allt saman og það er svolítið það sama með það. Mér finnst það ekkert gott en mér finnst gaman að smakka þetta.“ Audda og Sveppa fannst ekkert sérstaklega gaman að smakka surströmming í 70 mínútum á sínum tíma enda þurfti Auddi ekki annað en finna af henni lyktina til þess að kasta upp. Hann segist því vel geta skilið smekk fólks fyrir síldinni súru ef það hefur myndað tilfinningatengsl við hana. „Þá held ég að fólki finnist þetta rosalega gott. Bara eins og með mig og hákarlinn. Mér finnst hákarl bara alveg ógeðslega góður.Ég held líka að þetta sé bara spurning um lífsstílinn og þegar manni er boðið eitthvað svona þá verður maður að segja já. Maður verður að prófa.“Við þetta hefur Bibbi því að bæta að þegar hljómsveitin er að túra og lendir á fólki sem býðst til að elda sérkennilegan mat, eða menn rekast inn á framandi veitingastaði þar sem hægt er að smakka einhvern andskotann, þá snýst þetta kannski ekkert endilega um hvort þetta sé gott eða vont, heldur náttúrlega frekar bara að hafa gert þetta.“ Ógeðslegasti ógeðsdrykkurinn Vaskleg framganga Bibba og Þráins hefur vakið gamlar og illa lyktandi minningar frá ógeðsdrykkju Péturs Jóhanns, Sveppa og Audda Blö í sjónvarpsþættinum 70 mínútur á Popptíví. Ógeðsdrykkur sem þeir blönduðu 2004 þar sem aðalhráefnið var sænsk niðursuðu surströmming kennd við Oscar er almennt talinn ógeðslegasti ógeðsdrykkurinn. Enda þurfti Sveppi ekki nema bara að opna dósina, sem var að vísu komin þrjú ár fram yfir síðasta neysludag, til þess að Pétur og Auddi kúguðust svo að þeir köstuðu upp. Fnykur yfir landsleik „Þetta er legendary moment,“ segir Auddi þegar hann rifjar upp sitt fyrsta og eina návígi við surströmming. Ég ældi áður en ég drakk. Sveppi var sá eini sem smakkaði en við Pétur ældum báðir,“ segir Auddi og nefnir fleiri þolendur þessa glæfralega uppátækis.„Það besta var að þetta var á þriðjudegi og um kvöldið var landsleikur Íslands og Tékklands. Lyktin var enn þá í stúdíóinu og Höddi Magg var alveg bilaður þarna inni, með einhverja sérfræðinga, öskrandi hvað hefði gerst í þessu helvítis stúdíói. Það væri ekki hægt að vera þarna inni. Þeir þurftu að lýsa leiknum í þessari lykt.“
Akureyri Matur Ástin og lífið Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Sjá meira