Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 115-104 | Álftanes á leið í sumarfrí Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 21. mars 2026 15:45 Taiwo Badmus var í stuði í dag. vísir/Anton Tindastóll sigraði Álftanes 115-104 í æsispennandi leik í Síkinu á Sauðárkróki þar sem úrslitin réðust á lokamínútunum. Álftanes var í góðri stöðu lengi í leiknum en hrun á síðustu mínútunum varð liðinu að falli og ljóst er að Álftanes verður ekki með í úrslitakeppninni þetta árið. Leikurinn fór rólega af stað og átti Tindastóll erfitt með að hitta úr opnum skotum á fyrstu mínútunum, á meðan Álftanes náði snemma forskoti. Í öðrum leikhluta tók Tindastóll við sér og tókst fljótlega að jafna metin. Liðin skiptust þá á að taka forystuna. Um miðbik leikhlutans jafnaði Tindastóll metin í 41-41 með öflugri þriggja stiga körfu frá Sigtryggi Arnari. Góður kafli hjá gestunum tók þá við og náði liðið aftur undirtökunum og leiddi í hálfleik, 54-62. Álftanes byrjaði seinni hálfleikinn betur og náði tíu stiga forskoti snemma í þriðja leikhlutanum. Tindastóll vaknaði þá til lífs og minnkaði muninn jafnt og þétt. Tindastóli tókst að vinna þriðja leikhlutann 30-23 og leiddi Álftanes einungis með einu stigi fyrir fjórða leikhlutann. Fjórði hluti var jafn framan af á milli liðanna sem skiptust á því að hafa forystuna. Tindastóll setti niður stór skot á lokakaflanum á meðan Álftanes fór illa að ráði sínu ítrekað. Tindastóll nýtti sér það og sneri leiknum sér í vil á meðan Álftanes kastaði leiknum hreinlega frá sér á lokamínútunni. Atvik leiksins Leikur Álftnesinga hrundi gjörsamlega á síðustu tveimur mínútum leiksins. Gestirnir fóru illa með sóknir sínar, töpuðu boltanum og tóku slæmar ákvarðanir. Tindastóll refsaði og sneri leiknum við. Stjörnur og skúrkar Taiwo Badmus var öflugur fyrir Tindastól með 32 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar. Dedrick Basile var skammt undan með 31 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar. Báðir voru með 39 í framlag. Justin James var stigahæstur með 25 stig fyrir Álftanes, 7 fráköst og 8 stoðsendingar. David Okeke kom þar næstur með 23 stig og 9 fráköst. Stemning og umgjörð Það virtist vera fínasta stemning í Síkinu á Sauðárkróki og stuðningsmenn létu Álftnesinga alveg heyra það, sérstaklega á lokakaflanum. Dómarar Sigmundur Már, Bjarni Rúnar og Sigurbaldur stóðu vaktina í Síkinu í dag. Lítið um stór vafaatriði en tvisvar kíkt í skjáinn eftir áskorun þjálfara og í einungis í annað skiptið var dómnum snúið við. Bónus-deild karla Tindastóll UMF Álftanes
Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Íslenski boltinn
Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Íslenski boltinn