Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. mars 2026 21:00 Ómar vonar að Garðabær muni hlusta á beiðni íbúa. Vísir/Bjarni Íbúar í Salahverfi í Kópavogi óttast að óafturkræfur skaði verði unninn á helstu náttúruperlu hverfisins vegna fyrirhugaðra framkvæmda Garðabæjar.
Það var í febrúar sem bæjarstjórn Garðabæjar kynnti ákvörðun sína um lagningu nýs vegar, Vorbrautar frá Hnoðraholti í Garðabæ og að Salahverfi í Kópavogi. Til stendur að leggja veginn yfir golfvöll GKG og á þess í stað að ryðja sautján hektara af Smalaholtsskógi í burtu og koma nýjum golfbrautum þar fyrir. Yrði gjörbreyting á svæðinu Ómar Þór Kristinsson íbúi segist óttast að missa mestu náttúruperlu hverfisins og hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun vegna málsins. „Þetta er náttúrulega bara gjörbreyting á svæðinu, eins og þið getið séð hérna, þetta er yndislegur skógur, kannski ekki í þessu veðri, en á sumrin, vorin og svona þá er þetta mikið notað útivistarsvæði, þið sjáið fólk hlaupa, labba og þetta er mikið notað svæði.“ Íbúar hafi fengið þau svör að tryggja þurfi fleiri útgönguleiðir fyrir bílaumferð úr Hnoðraholti, nýju hverfi í Garðabæ. „Þeir segja að þurfi fleiri vegtengingar inn í þetta nýja hverfi, Hnoðraholtið. en nú horfum við bara á önnur hverfi á höfuðborgarsvæðinu og þeir eru bara með jafn margar tengingar eða fleiri nú þegar en mörg önnur hverfi, þetta er ekki nauðsynlegt.“ Ekkert rok í skóginum Máli sínu til stuðnings um mikilvægi skógarins dreif Ómar fréttamann og tökumann með sér inn í Smalaholtsskóg. Hér er ekkert rok? „Dottið í dúnalogn. Þetta er bara málið. Og það er fólk sem kemur hérna jafnvel þó það sé vont veður, því það veit það að inni í þessum skógi er skjól.“ Hann segist vongóður um að bæjaryfirvöld í Garðabæ og í Kópavogi muni hlusta á óskir íbúa. „Þá talar Garðabær um að þeir ætli að byggja upp skóg annars staðar, hérna aðeins syðra. En eigum við að bíða í fjörutíu ár í viðbót eftir að hann verði svona fallegur? Tíu metra há tré hérna? Okkur finnst þetta algjör synd og vonum að Garðabæ snúist hugur og hætti við þessar framkvæmdir.“
Kópavogur Garðabær Tré Skipulag Golfvellir Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Sjá meira