Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Kristján Már Unnarsson skrifar 18. mars 2026 21:31 Sigurður Harðarson sýnir viðtæki sem hann áætlar að hafi kostað meira en bílverð á sínum tíma. Það var keypt til það landsins til að ná erlendum útvarpsstöðvum áður en fyrsta íslenska útvarpsstöðin hóf útsendingar. Lýður Valberg Þess er minnst í dag að eitthundrað ár eru liðin frá fyrstu formlegu útvarpssendingunni á Íslandi. Hún fór fram í Loftskeytastöðinni við Suðurgötu og þar var síðdegis opnuð sýning í tilefni aldarafmælis íslensks útvarps.
Í kvöldfréttum Sýnar var sýnt beint úr Loftskeytastöðinni. Rætt var við þau Önnu Diljá Sigurðardóttur, hönnuð sýningarinnar, og Sigurð Harðarson, rafeindavirkja og fjarskiptasérfræðing, en þau skipulögðu sýninguna. Anna Diljá Sigurðardóttir, sýningarstjóri og hönnuður.Lýður Valberg Saga útvarpsins hófst sem einkaútvarpsstöð sem Ottó B. Arnar stóð fyrir í félaginu H.f. Útvarp. Sýningunni í Loftskeytastöðinni er lýst sem ferðalagi um fyrstu ár útvarps á Íslandi, áður en Ríkisútvarpið var stofnað. Sýningin ber heitið Dagurinn sem útvarpið varð að veruleika. Þessi fyrsta formlega útsending var þann 18. mars árið 1926, eins og þau Anna Diljá og Sigurður lýsa hér: „Saga útvarpsins er bæði saga tækninnar og þeirra tækja sem henni fylgja, en einnig sagan af þeim töfrum sem einkenndu upphaf útvarpsmiðlunar. Í gegnum sýninguna fá gestir að kynnast árdögum útvarpsins, þeim tilraunum sem gerðar voru og framtíðardraumum, hér á eyju lengst norður í úthafi. Á sýningunni eru tæki, hljóðnemar, útvarpstæki, hljóðupptökur, auglýsingar og aðrir gripir sem tengjast fyrstu skrefum útvarpsins,“ segir í sýningarlýsingu. Nokkur af elstu útvarpsviðtækjum Íslands eru meðal sýningargripa.Lýður Valberg Safnið er opið fimmtudaga til laugardaga frá klukkan 13 til 17. Ókeypis leiðsagnir verða fimmtudaga og laugardaga frá klukkan 13 til 17. Sýningin stendur til 11. apríl næstkomandi.
Fjölmiðlar Söfn Sýningar á Íslandi Tímamót Tækni Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira