Körfubolti

Ó­metan­legt fyrir ný­liða að hafa þessa bræður

Sindri Sverrisson skrifar
Bræðurnir voru duglegir að kynda í Þórsurum í leiknum mikilvæga síðasta fimmtudagskvöld.
Bræðurnir voru duglegir að kynda í Þórsurum í leiknum mikilvæga síðasta fimmtudagskvöld. Sýn Sport

„Bræðurnir og Zarko, þetta er lykillinn að þessari velgengni hjá þeim,“ sagði Hermann Hauksson um lið Ármanns. Nánast öllum að óvörum eru Ármenningar nú fyrir ofan fallsætin í Bónus-deildinni í körfubolta, þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.

Ármenningar unnu „rosalega stóran“ sigur gegn Þór í Þorlákshöfn síðasta fimmtudag, 79-74, og sendu þar með Þórsara í fallsæti.

Bræðurnir Bragi og Ingvi Þór Guðmundssynir, ásamt Zarko Jukic sem kom frá ÍR í desember fengu mesta hrósið í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: Bræðurnir og Zarko að bjarga Ármanni?

„Það sem ég er ánægðastur með er að þegar þeir lenda átta stigum undir í seinni hálfleik, þá gefast þeir ekki upp. Þeir gefa bara í, með bræðurna í fararbroddi. Og það sem ég held að hafi breytt mestu fyrir Ármann er Zarko Jukic. Hann er búinn að vera frábær fyrir þá, bæði varnarlega og sóknarlega,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson í þættinum.

Bragi var stigahæstur í leiknum með 31 stig og Ingvi skoraði 16.

„Mikið af þessum körfum eru frá þeim tveim. Svo láta þeir Þórsarana heyra það, bæði uppi í stúku og á bekknum og þá sem eru inni á vellinum. Það er ómetanlegt fyrir nýliða að hafa svona gæja til að draga vagninn,“ sagði Hörður Unnsteinsson sem stýrði þættinum.

„Algjörlega. Það hentar þeim svo vel að spila fyrir svona lið. Þeim er svolítið sama um aðstæður. Þeir geta verið rosalega kærulausir sem er svo gott því þá ertu aldrei smeykur. Þeir hræðast náttúrulega ekki að skjóta, geta skotið úr öllum færum,“ sagði Hermann en umræðuna má sjá hér að ofan.

Þáttinn í heild má finna í vefsjónvarpi Sýnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×