Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Eiður Þór Árnason skrifar 4. mars 2026 18:49 Vettvangur meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í Reykholti. Vísir Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans.
RÚV greinir frá þessu og vísar í ákæru sem þingfest verður í Héraðsdómi Suðurlands síðar í mánuðinum. Sakborningarnir sex eru Íslendingar, þar af ein kona, og eru þau tengd fjölskylduböndum. Fórnarlambið er með maltneskt ríkisfang en er sagður ættaður frá Palestínu. Elsti sakborningurinn er á sjötugsaldri en sá yngsti um þrítugt. Þrjú þeirra eru sögð hafa ráðist inn á heimili mannsins. Málið vakti mikla athygli árið 2024 en það kom inn á borð lögreglu eftir tilkynningu um að ekki hefði náðst í maltneskan karlmann búsettan í Biskupstungum í nokkra daga. Tveimur dögum síðar bárust lögreglu upplýsingar um að maðurinn hefði fundist á Möltu, illa haldinn og með áverka víðs vegar um líkamann. Fjögur voru þá handtekin: Karlmaður á áttræðisaldri, dóttir hans og tengdasonur um þrítugt auk bróður tengdasonarins. Sjá einnig: Vænsti maður og harðduglegur Árið 2024 kom fram að konan hafi verið grunuð um að skipuleggja ofbeldið sem hafi staðið yfir í þrjá daga. Nú kemur fram í ákæru að fórnarlambinu hafi meðal annars verið hótað að siglt yrði með hann til Grænlands þar sem honum yrði hent útbyrðis, að sögn RÚV. Fengið starfsmann til að setja upp rafræn skilríki Í ákæru er sakborningum einnig gert að hafa blekkt starfsmann í verslun Símans til að setja upp rafræn skilríki í síma mannsins. Þá hafi þau keypt flugmiða til Parísar og þaðan áfram til Möltu í nafni fórnarlambsins og síðan millifært 17,6 milljónir af reikningi hans. Eftir það hafi honum verið fylgt á Keflavíkurflugvöll og þau hótað að gera dóttur hans mein ef hann færi ekki um borð í flugið til Parísar, að því er fram kemur í frétt RÚV. Á Möltu hafi svo komið í ljós að hann væri meðal annars með fjögur brotin rifbein, blæðingu í framheila, nef- og puttabrotinn og vantaði fimmtán tennur.
Fjárkúgun í Reykholti Bláskógabyggð Lögreglumál Dómsmál Tengdar fréttir Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu í Reykholti í Biskupstungum í apríl í fyrra er lokið. Það kemur í hlut héraðssaksóknara að gefa út ákæru í málinu. 11. apríl 2025 07:02 Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Maltneskur karlmaður hefur lýst hrottafenginni meðferð af hálfu þriggja einstaklinga um nokkurra daga skeið í lok aprílmánaðar á þessu ári í Reykholti í Biskupstungum. 11. október 2024 16:18 Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur en einn látinn laus Tveir sakborningar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á mánudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í Reykholti gegn maltneskum manni. Gæsluvarðhaldið gildir til fyrsta júlí. 6. júní 2024 12:00 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu í Reykholti í Biskupstungum í apríl í fyrra er lokið. Það kemur í hlut héraðssaksóknara að gefa út ákæru í málinu. 11. apríl 2025 07:02
Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Maltneskur karlmaður hefur lýst hrottafenginni meðferð af hálfu þriggja einstaklinga um nokkurra daga skeið í lok aprílmánaðar á þessu ári í Reykholti í Biskupstungum. 11. október 2024 16:18
Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur en einn látinn laus Tveir sakborningar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á mánudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í Reykholti gegn maltneskum manni. Gæsluvarðhaldið gildir til fyrsta júlí. 6. júní 2024 12:00