„Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Smári Jökull Jónsson skrifar 3. mars 2026 19:09 Jakob Rolland er kanslari við kaþólsku kirkjuna á Íslandi. Vísir/Lýður Valberg Kanslari kaþólsku kirkjunnar segir að lög guðs gildi þegar þau stangist á við landslög og að engar skipulagðar bælingarmeðferðir fyrir samkynhneigða séu stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Hann segir lög sem banna fólki að breyta um líferni ekki forsvaranleg.
Mikil umræða hefur spunnist um afstöðu kaþólsku kirkjunnar til samkynhneigðra og svokallaðra bælingarmeðferða eftir viðtal sem birtist á RÚV við kanslara kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Árið 2023 voru samþykkt lög á Alþingi sem banna bælingarmeðferðir og varðar brot á þeim lögum fangelsi. Jakob Rolland er kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi og hann segir að vel sé tekið á móti öllum sem þangað leita. Aðspurður hvort það sé stefna kirkjunnar að samkynhneigðir þurfi að breyta sér segir Jakob það stefnu Jesú Krists. Klippa: Lýsir viðhorfum kaþólsku kirkjunnar til samkynhneigðra En fólk sem er samkynhneigt og stolt af því, er það siðferðilega rétt að hvetja þau til að reyna að breyta sér? „Við verðum að boða það sem kirkjan boðar. Það er bara einfalt. Hvort að það sé löglegt eða ekki löglegt, ég veit um þessi lög frá 2023. Það er ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja. Ég á að segja það sem kirkjan segir mér og það sem Jesús Kristur boðar,“ sagði Jakob í viðtali sem birtist í kvöldfréttum Sýnar. Finnst þér þið ekki þurfa að fara eftir lögum hvað þetta varðar? „Jú, svo lengi sem lögin samsvara guðs lögum, þá er allt í lagi. Það er vitað í lögfræði frá öndverðu að þegar lög landsins og guðs lög stangast á þá gilda guðs lög.“ Ekki skipulagðar bælingarmeðferðir Hann segir að innan kirkjunnar eigi sér ekki stað skipulagt starf sem miði að því að breyta eða bæla niður kynhneigð. „Nei, það eru ekki skipulagðar bælingarmeðferðir, bara fólk sem talar saman.“ „Fólk talar við prest og leitar ráðs. Svo er fólk sem vill fá stuðning í sínu andlegu lífi. Kemur til okkar, kemur í kirkju, kemur í bænastundir, í messu. Það er fyrst og fremst á þessu sviði sem við getum hjálpað.“ Algengt sé að fólk komi og leiti aðstoðar og fyrst og fremst til að lifa í samræmi við boðskap Jesú Krists. „Það getur komið fyrir að einhver þurfi, sé að sækjast eftir því að fá meiri faglega hjálp og þá verðum við að vísa til einhvers annars. Við erum ekki sálfræðingar, við erum prestar.“ Samkynja kynlíf sé vandamál Hann segir að „conversion“ eða sinnaskipti sé hluti af lífi kaþólikka, að hverfa frá öllu sem teljist syndsamlegt og innan kirkjunnar eigi sér stað samtöl hvað það varðar. Það sé stefna Jesú Krists að samkynhneigðir þurfi að breytast. „Fyrir bragðið, mér finnst að þetta er ekki forsvaranlegt.“ Hvað þá? „Það að banna að hjálpa fólki að breyta um líferni.“ En lítur kaþólska kirkjan á samkynhneigð sem vandamál? „Samkynhneigð sem tilhneiging, það geta margir fundið það hjá sér og er ekki endilega vandamál út af fyrir sig. Aftur á móti þegar maður stundar kynlíf með fólki af sama kyni, þá verður þetta að vandamáli.“ Samkynhneigð gert hátt undir höfði Jakob segir samkynhneigð gert hátt undir höfði hjá nútímafólki og spyr hvað sé tíðarandi, aðspurður hvort viðhorfin sem hann lýsi séu í takti við tíðarandann. „Ég var til dæmis í gær með með fund fyrir fólk sem vill sem vill fræða sig meira um kaþólska trú og kenningar kirkjunnar. Og það var bara stór hópur og langflestir voru ungt fólk. Þannig að ætli það sé það líka kannski tíðarandi að maður sé að leita að kjölfestu, að svörum í spurningum lífsins. Maður vill fá öryggi og athvarf og fólk, þannig töluðum við þetta fólkið sem er að leita til okkar.“ Heyrt um meðferðir sem miði að því að gera fólk samkynhneigt „Svo auðvitað, maður getur líka spurt. Hvers vegna er leyfilegt að hafa meðferð varðandi unga fólkið sem finnur fyrir að vera gagnkynhneigt? Það eru til meðferðir til að reyna að fá þetta fólk til að breyta og til að vera samkynhneigt. Það er í gangi.“ Hvar er það í gangi? „Meðferðir til að reyna að breyta unga fólki frá því að vera gagnkynhneigt yfir í það að vera samkynhneigt. Bara lesa í blöðum. Það er um leið og maður talar um samkynhneigð. Þú finnur blaðsíður eftir blaðsíðu eftir blaðsíðu í blöðum og í félagsmiðlum.“ Getur þú vísað í eitthvað sérstakt? „Nei, bara umræða almennt. Umræða almennt í fjölmiðlum og í skólum. Ég heyri þetta frá fólki, frá ungu fólki sem segir: „Svona er okkur sagt í skólum.““
Kynlíf Jafnréttismál Trúmál Hinsegin Alþingi Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Falla frá umdeildum áformum Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira