Upp­gjörið: Valur - KA/Þór 29-22 | Valskonur fylgja Haukum í úr­slit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði níu mörk í leiknum.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði níu mörk í leiknum. Vísir/Anton Brink

Valur tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta með öruggum sjö marka sigri gegn KA/Þór, 29-22.

Valskonur skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins úr sínum fyrstu þremur sóknum, á meðan Þór/KA tapaði boltanum í sínum fyrstu tveimur.

Það leit því út fyrir að Valur myndi stinga af strax í byrjun, en norðankonur gerðu vel í að halda í við Valsliðið og jöfnuðu metin í 5-5 eftir tæplega tíu mínútna leik.

KA/Þór náði svo forystunni í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 7-6 stuttu síðar, en þá setti Valsliðið aftur í gír og náði fimm marka forystu þegar mest var í stöðunni 15-10.

Aftur gerðu leikmenn KA/Þórs þó vel í að hleypa Valsliðinu ekki of langt fram úr sér og stelpurnar að norðan skoruðu þrjú af síðustu fjórum mörkum fyrri hálfleiks. Staðan var því 16-13, Val í vil, þegar flautað var til hlés og liðin gengu til búningsherbergja.

Norðankonur byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti. Þær minnkuðu muninn fljótlega niður í eitt mark og fengu tækifæri til að jafna metin áður en Valskonur komu boltanum einu sinni í netið eftir hlé.

Ekki tókst KA/Þór þó að jafna metin og Valskonur héldu forystunni. Hægt og bítandi seig Valsliðið fram úr og náði aftur fimm marka forskoti í stöðunni 21-16 þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka.

Meðfram því að Valskonur juku forskot sitt jafnt og þétt fró úr baráttu KA/Þórs. Þegar um tíu mínútur voru til leiksloka var munurinn enn fimm mörk og í raun ekkert sem benti til þess að stelpurnar að norðan myndu ógna forskoti Valskvenna.

Valsliðið gekk á lagið og náði mest níu marka forskoti þegar um þrjár mínútur voru til leiksloka og unnu að lokum sjö marka sigur, 29-22.

Valur er því á leið í úrslit Powerade-bikars kvenna þar sem liðið mætir Haukum, en KA/Þór er úr leik.

Atvik leiksins

Síðasta mínúta fyrri hálfleiks var vægast sagt skrautleg. Valsliðið tók leikhlé þegar rétt tæp mínúta var til hlés og ætlaði að stilla upp í eina sókn til að auka forskotið fyrir hálfleikinn. Í staðinn töpuðu Valskonur boltanum og fengu mark úr hraðaupphlaupi í bakið. Valskonur töpuðu svo aftur boltanum í næstu sókn áður en KA/Þór tapaði boltanum á leið sinni í annað hraðaupphlaup. Valskonur náðu þó loksins einu skoti fyrir hlé þegar Mariam Eradze skaut í hávörnina úr fríkasti þegar leiktíminn var liðinn.

Stjörnur og skúrkar

Þær Þórey Anna Ásgeirsdóttir og Lovísa Thompon drógu vagninn fyrir Valsliðið í kvöld. Þórey Anna var markahæsti leikmaður vallarins með níu mörk, þar af fimm úr víti, og Lovísa skoraði sex fyrir Val.

Í liði KA/Þórs voru þær Anna Þyrí Halldórsdóttir, Tinna Valgerður Gísladóttir, Susanne Denise Pettersen og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir atkvæðamestar með fjögur möek hver, en Tinna Valgerður og Susanne þurftu tíu skot hvor til að skora þessi fjögur mörk.

Þá gerðu norðankonur sér oft og tíðum erfitt fyrir með töpuðum boltum, en liðið tapaði boltanum alls 15 sinnum í kvöld.

Dómararnir

Þeir Kári Garðarsson og Magnús Kári Jónsson komust vel frá verkefni kvöldsins. Lítið um vafaatriði og þeir félagar leyfðu leiknum að rúlla nokkuð vel.

Stemning og umgjörð

Það er ekkert hægt að setja út á umgjörðina á Ásvöllum í kvöld, enda öllu til tjaldað þegar undanúrslit bikars eru annars vegar. Hins vegar var mætingin í stúkuna ekkert til að hrópa húrra yfir. Við leyfum stuðningsfólki KA/Þórs að njóta vafans, enda ekki fyrir hvern sem er að bruna suður frá Akureyri til að ná einum leik seint á miðvikudagskvöldi, en stuðningshópur Vals var ekki mikið fjölmennari hinum megin í stúkunni. Þau sem þó mættu létu þó vel í sér heyra.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira