Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna 1,4 sekúndum fyrir leikslok Hjörvar Ólafsson skrifar 20. febrúar 2026 20:52 Orri Gunnarsson var hetja Stjörnumanna í Laugardalshöllinni í kvöld. Vísir/Anton Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í 18. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti en lokatölur í leiknum urðu 88-90 Stjörnunni í vil. Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrstu tveimur leikhlutum leiksins. Ármann var yfir, 26-24, þegar fyrsta fjórðungi lauk en góður endasprettur Stjörnunar í öðrum leikhluta sá til þess að gestirnir leiddu 44-49 þegar liðin röltu til búningsherbergja í hálfleik. Sama spenna hélst í seinni hálfleik og Ármann var tveimur stigum yfir, 86-88, þegar skammt var eftir af leiknum. Stjarnan skoraði hins vegar fjgöur síðustu stig leiksins og Orri tryggði stigin tvö. Hilmar Smári Henningsson skoraði tvær þriggja stiga körfur með skömmu millibili undir lok leiksins sem voru gulls ígildi og Giannis Agravanis steig upp á ögurstundu eftir að hafa átt erfitt uppdráttar framan af leik. Baldur Þór var ánægður með stigin tvö en ekki sérlega sáttur við spilamennskuna. Vísir/Vilhelm Baldur Þór: Þeir spreyuðu skít á bekkinn okkar eftir þrista „Þetta var furðulegur leikur og við spiluðum ekkert sérstaklega vel i þessum leik. Við náðum að kveikja á okkur undir lok leiksins og það voru í raun Ármenningar sem kveiktu í okkur,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, kátur að leik loknum. „Leikmenn Ármanns voru að spreyja skít á bekkinn okkar eftir að hafa sett niður þriggja stiga körfur og ég held að það hafi kveikt neistann hjá okkur. Hilmar Smári setti tvo þrista þegar þess þurfti og við náðum að harka inn sigurinn,“ sagði Baldur Þór enn fremur. „Við vorum að fá á okkur margar villur, töpuðum mörgum boltum og leikurinn náði aldrei neinu flæði. Við tökum þessi tvö stig og förum nú inn í landsleikjahléið þar sem menn fara í mismunandi verkefni,“ sagði hann. „Nú fara einhver í endurheimt, aðrir að jafna sig á þeim meiðslum sem eru að plaga þá og einhverjir að ná sér ferskum af veikindum. Ég sjálfur sem og þeir Stjörnumenn sem eru í íslenska landsliðinu erum svo að fara að setja einbeitinguna á að leggja Litáen að velli,“ sagði Baldur um framhaldið hjá Stjörnuliðinu. Steinar: Héldum leikplaninu þangað til í lokin „Við spiluðum vel lungann úr leiknum og héldum okkar innan leikkplansins. Við náðum að stýra tempóinu og vorum klókir allt þar til í lokin þegar við fórum aðeins út úr því sem við ætluðum að gera,,“ sagði Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, eftir leik. Ármann Stjarnan Bónus-deild karla