„Rétt „outfit“ getur bjargað deginum“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 14:04 Ofurpæjan og verðandi fatahönnuðurinn Rósa Marí er viðmælandi í Tískutali. Aðsend „Ég tek alltaf eftir því að ég er í miklu betra skapi þegar ég er ánægð með lúkkið mitt. Rétt „outfit“ getur bjargað deginum,“ segir hin 25 ára gamla Rósa Marí Sigmarsdóttir, tískutöffari og nemandi í fatahönnun við Listaháskóla Íslands.
Rósa ræddi við blaðamann um persónulegan stíl, fataskápinn og fleira í þeim tískudúr. View this post on Instagram A post shared by Rósa Sigmarsdóttir (@roasig) Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? „Mér finnst skemmtilegast hvað tíska gefur manni mikið tækifæri til að leika sér og prófa sig áfram. Að para saman ólíkar flíkur og búa til ný lúkk og silúettur.“ Rósa elskar tjáningarform og frelsi tískunnar.Aðsend Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju? „Uppáhalds flíkin mín er jakki sem ég saumaði sjálf úr gömlum 66°Norður buxum og gömlum vindjakka sem ég fann í Rauða krossinum.“ Rósa er mikil tískuskvís. Aðsend Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni? „Ég myndi segja bæði já og nei. Ég er oftar en ekki á síðustu stundu, þannig stundum þarf ég bara að taka smá áhættu eða leap of faith og vona það besta þegar ég er að setja saman outfit. Þegar ég hef tíma finnst mér þó ótrúlega gaman að púsla lúkkinu saman.“ View this post on Instagram A post shared by Rósa Sigmarsdóttir (@roasig) Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? „Ég myndi segja að stíllinn minn akkúrat núna sé blanda af Y2K og götustíl eða street style með smá skvísu fíling. Of stórar eða oversized, víðar flíkur, lág mittisbönd, stórir jakkar og góðir hælar eru lykilatriði.“ Lágar buxur og stórir jakkar er kombó að skapi Rósu.Aðsend Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá? „Já en mér finnst stíllinn minn samt alltaf með svipaðan kjarna. Ég notast alltaf við svipaða litapallettu. Ég hef alltaf haft smá gellustíl með dass af streetwear og nota ennþá gamlar flíkur sem felast aftast í fataskápnum. Það sem hefur kannski breyst mest er að ég leyfi mér að prófa mig meira áfram en áður.“ Kjarninn í stíl Rósu helst sá sami en hún tekur meiri áhættu núna.Aðsend Nýturðu þess að klæða þig upp? „Algjörlega. Ég tek alltaf eftir því að ég er í miklu betra skapi þegar ég er ánægð með lúkkið mitt. Rétt outfitt getur bjargað deginum.“ Rétt outfitt getur bjargað deginum segir Rósa!Aðsend Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði? „Að líða vel í fötunum sínum er algjört lykilatriði, ef manni líður ekki vel í flíkinni þá sést það strax.“ View this post on Instagram A post shared by Rósa Sigmarsdóttir (@roasig) Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni? „Fyrsti innblásturinn minn var klárlega mamma mín. Hún er algjört tískuicon og ég stelst ennþá reglulega í fataskápinn hennar. Í dag fæ ég líka mikinn innblástur frá vinkonum mínum og fólkinu í kringum mig. Við elskum að lána föt okkar á milli og hjálpa hvor annarri að prófa nýja hluti.“ Rósa fær meðal annars tískuinnblástur frá vinkonum sínum.Aðsend Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði? „Eiginlega ekki, mér finnst skemmtilegast að sjá fólk með einkennandi fatastíl. Eina bannið er kannski bara að klæðast einhverju sem mér líður ekki vel í eða mögulega fötum frá Shein. Bestu fötin leynast oftast í rauðakrossinum eða á Vinted.“ Rósa er dugleg að versla notaðar flíkur og jafnvel hanna nýjar flíkur úr gömlum.Aðsend Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju? „Jakki sem ég fann á götumarkaði í Madrid stendur klárlega upp úr. Hann er úr leðri og geitaskinni og hefur mikinn karakter, svona flík sem maður gleymir aldrei.“ Hvað finnst þér heitast fyrir 2026? „Ég er að vona að 2000s tíska mun halda áfram að veita innblástur og að clean girl æðið fari í smá kælingu. Einnig er ég spennt fyrir að sjá pinnahæla, litríkar sokkabuxur, blúndu, skrautlegt skart og gleraugu.“ View this post on Instagram A post shared by Rósa Sigmarsdóttir (@roasig) Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku? „Treystu þínum eigin smekk. Besta lúkkið er alltaf það sem lætur þér líða eins og bestu útgáfuna af sjálfri þér.“
Tíska og hönnun Tískutal Mest lesið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Lífið samstarf Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Tónlist „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Sjá meira