Uppgjör: Afturelding-Valur 27-35 | Arnór með stórleik í stórsigri Kári Mímisson skrifar 8. febrúar 2026 17:00 Arnór Snær Óskarsson kom að tuttugu mörkum Valsmanna og klikkaði ekki á skoti. Vísir/Diego Afturelding tók á móti Val í sannkölluðum toppslag í Olís-deild karla. Fyrir leikinn var Valur í öðru sæti deildarinnar með 24 stig, jafn mörg og Haukar á meðan Afturelding var stigi á eftir. Svo fór að lokum að Valur vann afar sannfærandi átta marka sigur á Aftureldingu í dag og skellti sér í leiðinni á topp deildarinnar. Lokatölur 27-35 fyrir Val. Leikurinn fór vel af stað hér í Mosfellsbæ en jafnræði var milli liðanna í upphafi leiks. Liðin skiptust á að skora og allt benti til þess að hér yrði barist fram til síðasta blóðdropa. Í stöðunni 9-9 tóku Valsmenn aftur á móti öll völd á vellinum. Varnarlega náði liðið að berja sig saman ásamt því að nýta nánast allar sínar sóknir. Skotnýting Vals í hálfleik var í kringum 95 prósent en þeir Einar Baldvin Baldvinsson og Sigurjón Bragi Atlason, sem hafa verið sennilega besta markvarðapar deildarinnar, vörðu ekki skot í fyrri hálfleik, ótrúleg staðreynd en það verður nú líka að segjast að varnarleikur Aftureldingar var ekki beint til útflutnings í þessum leik. Staðan 12-18 í hálfleik fyrir Val. Seinni hálfleikur var látlaus og tilþrifalítill. Heimamenn náðu aldrei að gera neitt áhlaup á forystu Vals sem bætti í. Gestirnir náðu mest 10 marka forystu og kláruðu leikinn afar fagmannlega. Lokatölur úr Mosfellsbæ 27-35 fyrir Val sem tyllir sér á toppinn með þessum sigri þar sem Haukar töpuðu fyrir ÍBV á sama tíma. Atvik leiksins Í stöðunni 11-13 fyrir Val fékk Afturelding eina lengstu sókn sem hefur verið spiluð í handbolta. Höndin fór upp sem endaði með þremur neyðarskotum sem hávörn Vals tók öll áður en Harri Halldórsson átti skot sem Björgvin Páll greip í marki Vals. Þetta atvik er eiginlega lýsandi fyrir þennan leik sem verður seint í minnum hafður fyrir að hafa verið skemmtilegur. Stjörnur og skúrkar Maður leiksins verður að vera Arnór Snær Óskarsson en drengurinn skoraði 13 mörk úr jafnmörgum skotum, þar af 8 af vítalínunni. Björgvin Páll svaraði ágætlega fyrir gagnrýnina sem hann hefur fengið að undanförnu en hann varði 13 skot (33 prósent) og þar af tvö víti. Skúrkur dagsins fer á vörn og markvörslu Aftureldingar í heild sinni. Einar Baldvin endar á því að verja 6 skot (20 prósent). Sigurjón kom inn á í tvígang og tókst ekki að klukka eitt af þeim níu skotum sem hann fékk á sig. Dómarinn Sigurður Hjörtur og Svavar Ólafur héldu um flautuna í dag og gerðu það bara ansi vel. Þessi leikur var vissulega ekki erfiður að dæma en þeir voru heldur ekki að flækja þetta neitt. Stemning og umgjörð Ótrúlega léleg mæting á Varmá í dag og þá sérstaklega í ljósi þess hvað var undir. Ef stúkan var jafn skítug og blaðamannastúkan þá reyndar skil ég alveg að fólk hafi valið það að taka leikinn heima. Þó að það sé langt úr Hlíðunum í Mosfellsbæinn þá hefði ég nú alveg viljað sjá einn Valsmann í stúkunni í dag. Stefán Árnason, þjálfari Aftureldingar.vísir/Viktor Freyr Stefán: Við erum bara ekki mættir til leiks eftir áramót Stefán Árnason, þjálfari Aftureldingar, var að vonum svekktur með tap sinna manna gegn Val nú í dag. „Það er svekkjandi að sjá hvernig við komum til leiks hér í kvöld. Við náðum okkur engan veginn í gang varnarlega. Okkur hefur ekki tekist að ná okkur í gang varnarlega í fyrstu tveimur leikjum okkar eftir áramót. Þetta var leikur fyrstu 20 mínúturnar þar sem við erum bara einu marki frá þeim en svo endum við hálfleikinn mjög illa og við það erum við komnir allt of langt á eftir þeim svona miðað við hvernig þetta var að spilast. Við erum bara ekki mættir til leiks eftir áramót og þurfum að finna út úr því. Við þurfum að spila betur en þetta ef við ætlum að vinna einhverja leiki.“ Stefán segir að varnarlega hafi liðinu tekist illa í síðustu tveimur leikjum sínum og að skortur sé á öryggi þar. „Við höfum ekki náð vörninni í gang eftir áramót en við erum að reyna að smíða saman nýja vörn. Það hefur ekki virkað í bæði leiknum á móti Fram í síðustu umferð né hér í dag. Okkur hefur skort öryggi varanlega, við náum aldrei almennilegum tökum á þessu og förum að elta. Við vorum þó töluvert betri sóknarlega þessar fyrstu 20 mínútur heldur en í síðasta leik. Þegar við náum meira öryggi þá mun þetta snúast.“ Í ljósi þess hversu jafn leikurinn var framan af verður að spyrja Stefán hvort það sé ekki extra svekkjandi að sjá liðið missa tökin á leiknum á svona stuttum tíma. „Þetta var hörku leikur fyrstu 20 mínúturnar þar sem við vorum búnir að vera í séns til að vera yfir eftir að hafa farið illa með eitt og eitt færi. Það hélt svo áfram. Þessi leikur var algjörlega opinn til þess að taka og munurinn aðeins eitt mark eftir hverja 21 mínútu en samt vorum við þá ekki búnir að spila neina vörn og áttum inni sóknarlega. Bara með því að laga nokkra hluti og grípa tækifærið þá hefðum við komist yfir en í staðinn erum við sex mörkum undir í hálfleik. Það er mjög erfitt að koma til baka gegn Val í þeirri stöðu.“ Þeir Einar Baldvin og Sigurjón Bragi hafa verið frábærir á þessu tímabili fyrir Aftureldingu en náðu sér ekki á strik í dag. Stefán segist vilja fá meira frá þeim en bendir áfram á að vörnin hafi ekki verið að hjálpa þeim í dag. „Markverðirnir vita það báðir að þeir hefðu getað gert betur í dag. Þetta helst auðvitað í hendur, varnarleikur og markvarsl,a og vörnin var engan veginn að hjálpa þeim. Við viljum klárlega fá meira frá þeim. Þeir hafa sýnt það mikið fyrir áramót og verið sennilega eitt af þeim best,u ef ekki bara besta markvarðapar landsins. Við þurfum að láta andstæðinga okkar hafa meira fyrir þessu. Þetta er annar leikurinn í röð þar sem andstæðingurinn fær að gera sóknarlega það sem þeir vilja á móti okkur.“ Björgvin Páll Gústavssonvísir / anton „Þú getur ekki fengið bara annaðhvort lof eða last“ Björgvin Páll Gústavsson átti fínan leik fyrir Val þegar liðið vann afar sannfærandi átta marka sigur á Aftureldingu í Olís-deild karla í handbolta í dag. „Þetta var geggjuð frammistaða hjá okkur. Það komu tvö særð lið til leiks eftir fyrstu umferðina eftir áramót. Við svöruðum vel fyrir tapið gegn Haukum hér í dag en það er líka svekkjandi að þurfa einn leik til að ná áttum. Afturelding er með hörkulið og því mikilvægt að mæta loksins til leiks. Ég er mjög sáttur með hvernig viðhorfið var hjá okkur en þá sást alveg frá fyrstu mínútu hversu mikil gleði var hjá okkur sem mögulega vantaði eftir síðasta leik,“ sagði Björgvin Páll. Björgvin Páll var nýlega kominn heim af EM með landsliðinu. Hann segir það geta verið erfitt að mæta til baka strax eftir stórmótin sem hann segist hafa lokað í gær með stöðufærslu á Facebook. „Það þarf bara að ná að stilla hausinn. Þetta er ekki fyrir alla, enda er þetta líkamlega erfiðast en andlega er þetta rosalega skrýtið. Þú ert í nýju umhverfi, færð réttan mat í hendurnar í heilan mánuð og allur sá pakki. Svo þegar þú kemur til baka þá fer maður að vinna í öllu því sem gerðist á mótinu. Það er ástæðan fyrir að ég setti satus á Facebook í gær, ég vildi loka mótinu og fannst það vera gott að gera það svona. Nú er það skilið eftir og ég get þá einbeitt mér að næsta verkefni. Mér fannst hausinn ekki alveg vera rétt skrúfaður eftir síðasta leik og ég þurfti að gera eitthvað til að koma mér í gírinn,“ sagði Björgvin. En er ekki partur af gagnrýninni á þig að þú hefur bara verið einn vinsælasti íþróttamaður þjóðarinnar undanfarin 15 ár? „Þú getur ekki fengið bara annaðhvort lof eða last. Ég lærði það fyrst 18 ára gamall og er búinn að vinna með þessu í ansi mörg ár. Það nýja núna er það að börnin mín eru farin að sjá gagnrýnina sem er mögulega smá erfitt fyrir þau. Þetta er samt bara góður skóli fyrir alla og ég er þannig gerður að ég fæddist ekki með bestu spilin í höndunum. Ég þekki það hvernig það er að berjast í gegnum mótlætið og fæ orku út úr þessu bulli. Ég er orðinn það klikkaður í hausnum að ég tek skjáskot af þessu og nota sem orku. Á fyrsta stórmótinu mínu var Facebook varla komið. Maður er enn að læra inn á þetta og er enn með aðgang að öllum þessum samfélagsmiðlum. Ég elska þetta líka enda er þetta partur af þjáningunni og ferlinu að vera í þessu,“ sagði Björgvin. Olís-deild karla Valur Afturelding