KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Ísak Orri Schjetne skrifar 7. febrúar 2026 16:53 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, fyrirliði KR, lyftir hér bikarnum í Smáranum í dag. Vísir/Anton KR-ingar urðu í dag bikarmeistarar karla í körfubolta eftir sextán stiga sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar, 100-84, í úrslitaleik VÍS-bikarsins í Smáranum. KR-ingar töpuðu bikarúrslitaleiknum í fyrra en komu reynslunni ríkari í dag. Þetta er fimmtándi bikarmeistaratitill KR-inga sem er bæting á eigin meti en um leið fyrsti stóri titill félagsins í sjö ár. Linards Jaunzems var frábær með 26 stig og 13 fráköst fyrir KR, Kenneth Jamar Doucet Jr skoraði 23 stig og Toms Leimanis var með 19 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var síðan með 17 stig og 9 stoðsendingar. KR-liðið tók frumkvæðið í upphafi leiks og hélt því allt til enda. Sprettir Stjörnumanna voru bara of fáir og of stuttir til að setja alvöru pressu á Vesturbæjarliðið. Stjörnumenn mættu í Smárann í dag á ellefu leikja sigurgöngu og voru sigurstranglegra liðið fyrir leikinn. KR-ingar voru á allt öðru máli og voru komnir ellefu stigum yfir strax í fyrsta leikhlutanum. Í hálfleik munaði síðan þrettán stigum á liðunum, KR var 59-46 yfir. Stjörnumenn skoruðu fyrstu sex stig seinni hálfleiks en KR-ingar stóðu það af sér og það munaði enn níu stigum, 65-74, fyrir lokaleikhlutann. Þorvaldur Orri Árnason fagnar með bikarinn.Vísir/Anton KR var komið nítján stigum yfir um miðjan fjórða leikhlutann, 91-72. Stjörnumenn gáfust ekki upp og voru búnir að koma muninn niður í átta stig þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en nær komust þeir ekki. Það var allt sem benti til stórskemmtilegs leiks hér í Kórnum í dag þegar KR tryggði sér VÍS-bikarinn með öruggum sigri á Stjörnunni, 84–100, í úrslitaleiknum þar sem KR-ingar voru skrefinu á undan frá upphafi til enda. KR tók strax frumkvæðið KR hóf leikinn af krafti og Linards Januzems setti fyrstu fjögur stig liðsins. Leikurinn var járn í járn framan af og staðan 10–13 þegar Stjörnumenn fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt stig, en Luka Gasic brenndi þá á báðum vítaskotunum. Það virtist kveikja í KR-liðinu sem gaf í kjölfarið. Munurinn jókst hratt og þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir var staðan orðin 14–22. Mest fór munurinn í 16–27 áður en Stjarnan svaraði aðeins fyrir sig. Linards Januzems var í miklu skotstuði og skoraði 13 stig í leikhlutanum. KR hristi af sér áhlaup Stjörnunnar Stjörnumenn byrjuðu annan leikhluta mun betur, settu fyrstu fjögur stigin og minnkuðu muninn í 26–29. KR náði þó fljótt aftur tökum á leiknum og eftir fimm mínútna leik í leikhlutanum var liðið komið aftur á sitt skrið, 31–40. Tóti Túrbó lét þá til sín taka, setti djúpan þrist á 19. mínútu og kom KR í 40–52, áður en hann bætti tveimur stigum við þegar um 30 sekúndur voru eftir, 43–54. KR tók leikhlé þegar 20 sekúndur voru eftir, Tóti klúðraði þristi í síðustu sókn hálfleiksins en Toms Elvis Leimanis var fyrstur á lausan bolta og blakaði honum í körfuna þegar 0,1 sekúnda var eftir af skotklukkunni. KR-ingar þakka frábærum stuðningsmönnum sínum fyrir leikinn.Vísir/Anton Hiti færðist í leikinn Stjörnumenn minnkuðu muninn strax í upphafi seinni hálfleiks og komu stöðunni í 49–56, en KR svaraði fljótt og hélt forskotinu stöðugu. Þá færðist hiti í leikinn þegar Seth LeDay og Kenneth Jamar lentu í orðaskiptum og rifrildi, áður en Toms Leimanis sparkaði boltanum í bringu Orra Gunnars í ósætti sem fylgdi í næstu sókn. Kenneth Jamar lét svo til sín taka undir lok leikhlutans og setti þrist þegar tvær mínútur voru eftir sem kom KR í 60–70. KR-ingar kláruðu af yfirvegun Kenneth Jamar hóf fjórða leikhluta með þristi og KR fylgdi því eftir með körfu í næstu sókn, 65–79, og þá var brekkan orðin brött fyrir Stjörnumenn. Heimamenn brenndu ítrekað á skotum í upphafi leikhlutans og voru stigalausir fyrstu tvær mínúturnar. Þrátt fyrir að LeDay hafi sett niður bæði fríköst sín fyrir Stjörnuna og minnkað muninn í 67–80 svaraði Tóti Túrbó strax með tveimur fríköstum, 67–82. KR gaf ekkert eftir og staðan var 74–91 þegar fjórar mínútur voru eftir. Ægir Þór kveikti örlitla von með fimm stigum í röð fyrir Stjörnuna, 79–91, en nær komust þeir ekki. Þegar mínúta var eftir klúðruðu Stjörnumenn færi og fengu brot á sig í kjölfarið. Tóti Túrbó refsaði með þremur fríköstum, 83–95, þegar 45 sekúndur voru eftir. Hann átti svo lokaorðið með þristi undir lokin og kom KR í þriggja stafa tölu, 84-100. Atvik leiksins: Þetta blokk + skyndisókn hjá Kenneth Jamar um miðjan seinni leikhluta kveikti gjörsamlega í liðinu, þar varð staðan 31-40 og Garðbæingar þurftu að taka leikhlé eftir þetta atvik og KR gáfu aldrei eftir eftir það. Stjörnur og skúrkar: Linards Jaunzems fær stjörnutitilinn, hann var með 26 stig fyrir KR og var valinn MVP, einnig fær Kenneth Jamar Doucet JR titilinn, en hann skilaði 23 stigum í kvöld! Dómararnir: Dómarar leiksins voru Kristinn Óskarsson, Bjarni Hliðkvist og Jón Þór; þeir náðu góðum tökum á leiknum og héldu öllu til haga; þeir geta farið sáttir af velli með medalíur fyrir gott dagsverk. Stemning og umgjörð: Það er alltaf sérstök tilfinning að mæta á úrslitaleik, hvað þá inni í húsi þar sem einhver rosaleg orka myndast í takt við hita og stemningu. Það var nánast enginn sitjandi í stúkunni í 40 mínútur hér í Kórnum á meðan leik stóð, stemningin var til algjörrar fyrirmyndar, orkan og söngvar stuðningsmanna beggja liða skilaði sínu og það sást hversu mikið það þýddi fyrir leikmenn liðanna. Umgjörðin var í sama dúr og stemningin, til fyrirmyndar, virkilega þægilegt aðgengi fyrir fjölmiðlana og góð yfirsýn frá fjölmiðlastúkunni. Jakob Örn Sigurðarson með bikarinn sem hann hefur unnið áður sem leikmaður KR en nú sem þjálfari.Vísir/Anton Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Jakob Örn Sigurðarson kom KR aftur upp í efstu deild, var að koma liðinu í bikarúrslitaleik annað árið í röð og nú er fyrsti titill félagsins í sjö ár í höfn. „Þetta er geggjað, ég er virkilega ánægður með strákana, þeir voru frábærir í dag,“ sagði Jakob eftir leik. Gekk allt upp eins og hann hafði séð fyrir þér fyrir leikinn? „Maður vonaðist eftir því, ég var virkilega ánægður með hvernig við komum inn í leikinn, einbeitingin var á réttum stað, leikmenn voru orkumiklir og út um allt,“ sagði Jakob. „Við tókum orkuna frá áhorfendunum og notuðum það á vellinum og náðum samt einhvern veginn að halda einbeitingunni. Það var mjög mikilvægt fyrir okkur,“ sagði Jakob. Tókuð orkuna frá áhorfendum, bara hversu mikilvægir voru þeir á pöllunum í dag? „Það skiptir öllu, það hefur margoft verið sagt að áhorfendur á úrslitaleikjum í úrslitakeppni séu bara þeir bestu, þannig að það var bara geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki,“ sagði Jakob. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar.Vísir/Anton Stjörnumenn svekktir eftir leik: „Enginn í okkar liði átti A-klassa frammistöðu“ Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, og fyrirliðinn Ægir Þór Steinarsson voru skiljanlega svekktir í leikslok eftir stórt tap á móti KR í bikarúrslitaleiknum. „Ég er bara leiður yfir að hafa tapað leiknum. Við hefðum geta gert betur á öllum vígstöðvum, enginn í okkar liði sýndi A-klassa frammistöðu – B-klassa frammistaða á of mörgum vígstöðum. KR-liðið bara „overpower“-aði okkur í dag, það er eins og það er,“ sagði Baldur. Ægir Þór sagði að það væri margt sem þeir hefðu geta gert betur. „Fyrstu viðbrögðin voru bara til hamingju, KR-ingar áttuð þetta fyllilega skilið. Þeir spiluðu betur en við í dag, við vorum að elta þá allan tímann, þeir sýndu bara gæði sem við réðum ekkert við í dag,“ sagði Ægir en hvað fannst honum hafa mátt fara betur hjá Stjörnunni? „Við hefðum kannski átt að mæta af meiri krafti, þeir voru að ná mikið af sóknarfráköstum og voru mikið að komast á körfuna og voru eiginlega að pakka okkur saman á öllum stöðum. Það er margt sem við hefðum geta gert betur,“ sagði Ægir en hvernig gíra menn sér fyrir næsta leik í deild? „Við erum lítið að pæla í því núna, það er partur af þessu að vera í „momentinu“ sama hvort maður tapar eða vinnur, þetta snýst bara um að „recover“-a og sleikja sárin aðeins, svo bara áfram,“ sagði Ægir. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, fyrirliði KR.Vísir/Anton „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Þórir Guðmundur Þorbjarnarson þekkir það að vinna titil með KR sem aukaleikari en í dag varð hann bikarmeistari sem fyrirliði liðsns.Þórir átti flottan leik í sannfærandi sigri á Stjörnunni með 17 stigum og níu stoðsendingum.„Ég er ógeðslega glaður, ógeðslega stoltur af þessu liði og við komum heldur betur tilbúnir í þennan leik. Við ætluðum okkur að vinna hann og það tókst - ég veit ekki hvað ég á að segja meira,“ sagði Þórir eftir leik.KR-ingar komu gríðarlega grimmir til leiks, náðu forystu og héldu henni út leikinn. Gekk allt eftir?„Svona mestmegnis. Þeir eru með gríðarlega gott lið, fullt af vopnum og við reyndum að takast á þeim sem gekk þokkalega - þeir vilja keyra upp hraðann og við náum að halda þeim í 84 stigum og það uppskar sigurinn. Við náðum mikið af sóknarfráköstum í fyrri hálfleik, ekki alveg jafn mikið í þeim seinni, það var eini munurinn,“ sagði Þórir.KR-liðið fékk frábæran stuðning í bikarúrslitaleiknum.„Það er ekkert lið á Íslandi sem býr til svona orku, ég er svo glaður að sjá allt þetta fólk hérna, maður þekkir hvert einasta andlit, KR, þetta er engu líkt. Ég er svo þakklátur fyrir þennan stuðning og við ætlum að skemmta okkur í kvöld,“ sagði Þórir. VÍS-bikarinn Stjarnan KR
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti