„Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2026 14:00 Jakob í leik með KR fyrr á tímabilinum. Pawel Cieslikiewicz Undanúrslitin í VÍS-bikarnum fara fram í Smáranum í kvöld. Keflavík mætir Stjörnunni klukkan 17:15 og Tindastóll mætir síðan KR klukkan 20:00. KR-ingar hafa nú unnið fjóra leiki í röð í Bónus-deildinni og þykja eitt heitasta liðið á landinu í dag. En Stólarnir hafa aftur á móti tapað tveimur leikjum í röð í deildinni og það illa fyrir Keflavík á dögunum og síðan Stjörnunni á föstudagskvöldið. „
Það er búið að vera fínn stígandi í þessu hjá okkur hérna eftir áramót. Við höfum náð að setja saman nokkra sigra í röð og mér finnst liðið svona vera að koma vel saman núna. En þetta er bara risaleikur og á móti mjög góðu liði,“ segir Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR í hádegisfréttum Bylgjunnar. En hvernig ætlar Jakob að koma KR-liðinu í úrslit bikarsins annað árið í röð? „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg. Við vitum alveg að Stólarnir munu koma mjög aggressívir til leiks og reyna svolítið að keyra upp stemninguna frá byrjun þannig að við þurfum að vera tilbúnir í byrjun og svo náttúrulega að ná að stjórna hraðanum og hægja svolítið á þeim í gegnum allan leikinn.“ Stuðningsmenn Stólanna eru þekktir fyrir að vera öflugir í stúkunni en það eru líka stuðningsmenn KR-inga. Það mætti alveg gera ráð fyrir frábærri stemningu í Smáranum í kvöld. „Ég býst við því. Við vorum náttúrulega í bikarúrslitum í fyrra og vorum með frábæra mætingu þar og stuðningsmenn okkar gerðu gríðarlega vel og ég býst ekki við öðru í kvöld. Sérstaklega núna á móti Tindastól sem eru alltaf með mikið af fólki í stúkunni og mikil læti þannig að ég býst bara við gríðarlega góðri stemningu í stúkunni.“
Körfubolti VÍS-bikarinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira