Dagskráin: Big Ben, Skiptiborð, Íslendingaslagur í Evrópu og Körfuboltakvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2026 06:00 Guðmundur Benediktsson fær góða gesti í þáttinn í kvöld. Vísir/Vilhelm Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.
Bónus-deild karla í körfubolta er í fullum gangi eins og vanalega á fimmtudögum en fjórir leikir verða í beinni í kvöld. ÍR tekur á móti Stjörnunni, Keflavík fær Ármann í heimsókn, Valur tekur á móti Þór og Skagamenn mæta út á Álftanes. Skiptiborðið fylgist með öllum leikjunum samtímis og eftir þá er kvöldið gert upp í Tilþrifunum. Bónus Körfuboltakvöld kvenna mun einnig gera upp síðustu umferð Bónusdeildar kvenna í dag. Það verður sýndur Íslendingaslagur í beinni í Evrópudeildinni þegar lærisveinar Freys Alexanderssonar í Brann taka á móti Elíasi Rafni Ólafssyni og félögum í danska félaginu Midtjylland. Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille verða einnig í beinni þar sem þeir heimsækja Celta Vigo í Evrópudeildinni. Daníel Tristan Guðjohnsen og félagar í Malmö verða einnig í beinni þegar þeir fá Rauðu Stjörnuna í heimsókn. Það verða einnig fleiri leikir sýndir beint úr Evrópudeildinni. Kvöldið endar svo á nýjum þætti af Big Ben þar sem Guðmundur Benediktsson og Hjálmar Örn Jóhannsson fara yfir íþróttalífið en enska úrvalsdeildin fær þar stórt pláss. Kapparnir fá góða gesti í gott spjall. Það verður einnig sýnt frá golfi og íshokkídeildinni í Bandaríkjunum. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag. SÝN Sport Ísland Klukkan 17.30 hefst Bónus Körfuboltakvöld kvenna þar sem farið er yfir umferð vikunnar í Bónusdeild kvenna. Klukkan 19.10 hefst Skiptiborðið þar sem verður fylgst með öllum leikjum kvöldsins í Bónus-deild karla í körfubolta. Klukkan 21.10 hefjast Tilþrifin þar sem farið verður yfir alla leiki kvöldsins í Bónus-deild karla í körfubolta. SÝN Sport Ísland 2 Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik ÍR og Stjörnunnar í Bónus-deild karla í körfubolta. SÝN Sport Ísland 3 Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Keflavíkur og Ármanns í Bónus-deild karla í körfubolta. SÝN Sport Ísland 4 Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Vals og Þórs Þorl. í Bónus-deild karla í körfubolta. SÝN Sport Ísland 5 Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Álftaness og ÍA í Bónus-deild karla í körfubolta. Sýn Sport Klukkan 17.35 hefst bein útsending frá leik Brann og Midtjylland í Evrópudeildinni í fótbolta. Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá leik Braga og Nottingham Forest í Evrópudeildinni í fótbolta. Klukkan 22.10 hefst Big Ben sem er umræðu- og viðtalsþáttur um íþróttir í umsjón Guðmundar Benediktssonar. Sýn Sport 2 Klukkan 17.35 hefst bein útsending frá leik Malmö og Rauðu stjörnunnar í Evrópudeildinni í fótbolta. Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá leik Rangers og Ludogorets í Evrópudeildinni í fótbolta. Sýn Sport 4 Klukkan 07.30 hefst útsending frá Hero Dubai Desert Classic-golfmótinu á DP World Tour. SÝN Sport Viaplay Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Fenerbahce og Aston Villa í Evrópudeildinni í fótbolta. Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá leik Celta og Lille í Evrópudeildinni í fótbolta. Klukkan 00.05 hefst bein útsending frá leik Columbus Blue Jackets og Dallas Stars í NHL-deildinni í íshokkí.
Dagskráin í dag Mest lesið Lebron talaði hreint út Körfubolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti Elvar með sex mörk í toppslagnum Handbolti Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Fótbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti Fleiri fréttir Lebron talaði hreint út Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Megum ekki detta niður á þeirra plan „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Minden keypti Erling af ÍBV Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Dagskráin í dag: Belgía tekur á móti stórliði Frakklands Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Sjá meira