Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. janúar 2026 12:56 Vilborg Ása Guðjónsdóttir er alþjóðastjórnmálafræðingur. Samsett mynd Sendiherrar Evrópusambandsins koma saman á neyðarfundi seinna í dag vegna Grænlandstolla Bandaríkjaforseta. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir samband Bandaríkjanna og Evrópu aldrei hafa verið verra. Hún útilokar ekki að Ísland bætist á lista forsetans.
Donald Trump tilkynnti á samfélagsmiðli sínum Truth social í gær að tíu prósenta tollur verði lagður á allar innfluttar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og með fyrsta febrúar. Þann fyrsta júní verður tollurinn hækkaður í 25 prósent. Tollarnir beinist gegn löndum sem hafa sett sig upp á móti því að Bandaríkin eignist Grænland með því að senda mannafla til Grænlands síðustu daga. Enn hefur ekkert komið fram sem gefur til kynna að Grænlandstollarnir bitni á Íslandi þrátt fyrir að hafa sent tvo fulltrúa Landhelgisgæslunnar. Bandaríkjaforseti mögulega gleymt Íslandi Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur segir það vel geta verið að Bandaríkjaforseti hafi gleymt Íslandi. „Það hefur væntanlega einhver áhrif að við erum ekki með her og þetta eru ekki hermenn sem við erum að senda. Síðan hefur kannski borið lítið á því í alþjóðlegum fjölmiðlum og hann kannski veit ekki af því að við höfum sent einhverja fulltrúa. Heldurðu að það geti jafnvel gerst að okkur verði bætt á þennan lista? „Í það minnsta höfum við lítið um það að segja en það er ekki útilokað að okkur verði bætt á listann eftir því sem þessu vindur fram. Eins og staðan er í dag erum við ekki á honum en auðvitað ef að aðstæður þróast áfram næstu daga og vikur þá gæti það að sjálfsögðu breyst.“ Ekkert jákvætt og Bandaríkin einnig háð Evrópu Fjölmargir Evrópuleiðtogar hafa stigið fram og fordæmt útspil Trumps. Þá hefur verið vísað til áformanna sem fjárkúgunar. „Þetta eru auðvitað miklar þvingunaraðgerðir sem hann er að beita bandalagsríki. Staðan er gríðarlega alvarleg. Það er erfitt að sjá að þróunin fram á við geti verið jákvæð á einhvern máta.“ Verslunarsamningur Bandaríkjanna og Evrópusambandsins sem var undirritaður í fyrra er nú í uppnámi en meirihluti Evrópuþings neitar nú að staðfesta samkomulagið. Sendiherrar Evrópusambandsins koma saman á neyðarfundi seinna í dag. Vilborg segir Evrópu langt því frá að standa varnarlausa frammi fyrir ákvörðunum Bandaríkjanna. „Heldur eru Bandaríkin einnig háð Evrópu. Evrópusambandið er auðvitað stærsti innri markaður í heimi og viðskiptasamband Bandaríkjanna við Evrópu er því mjög mikilvægt. Það eru ákveðin tól sem Evrópusambandið getur beitt sem bíta hart hvað varðar bandarískan efnahag,“ segir Vilborg sem nefnir sem dæmi tolla og að gera bandarískum fyrirtækjum erfiðara fyrir á evrópskum mörkuðum. Ísland á milli í skothríðinni Hefur samband Bandaríkjanna og Evrópu einhvern tímann verið verra? „Nei, það hefur aldrei verið verra en það er núna. Ég held að það sé alveg hægt að halda því fram.“ Ísland gæti orðið á milli í tollastríðinu. „Staðan er gríðarlega alvarleg og það stefnir í algjört uppnám í samskiptum Evrópu og Bandaríkjanna og jafnvel allsherjar viðskiptastríð sem myndi auðvitað hafa gífurlega miklar afleiðingar. Allt uppnám í alþjóðakerfinu, ég tala nú ekki um á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, hefur auðvitað bein áhrif á ísland það segir sig sjálft. Við erum gríðarlega háð alþjóðlegum viðskiptum.“
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Evrópusambandið Danmörk Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Fleiri fréttir Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Sjá meira