Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. janúar 2026 06:37 Tíminn mun leiða í ljós hvort eitthvað sé að marka loforð stjórnvalda í Íran um að hætta að beita mótmælendur ofbeldi. Getty/Alishia Abodunde Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa verið fullvissaður um að stjórnvöld í Íran séu ekki lengur að drepa mótmælendur í landinu en að hann muni fylgjast með stöðu mála og sjá til með mögulegar hernaðaraðgerðir.
Forsetinn hafði áður ítrekað hótað því að grípa til aðgerða vegna framgöngu stjórnvalda gegn mótmælendum, hvatt mótmælendur til dáða og jafnvel heitið aðstoð frá Bandaríkjunum. Iran Human Rights, mannréttindasamtök í Noregi, segja að minnsta kosti 3.428 hafa látist í mótmælunum. Þau hafa staðið yfir frá því fyrir áramót og út um allt land. Trump sagði einnig að stjórnvöld í Íran hefðu sagt að engar aftökur væru yfirvofandi en áður hafði verið greint frá því að mótmælandi sem var handtekinn í síðustu viku og hefur þegar verið dreginn fyrir dóm og fundinn sekur yrði hengdur í vikunni. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, staðfesti á Fox News í gær að það stæði ekki til að hengja mótmælendur og þá hafa borist fregnir af því að fjölskyldu áðurnefnds mótmælanda hafi verið tjáð að aftöku hans hafi verið frestað. Íranir virðast þannig vera að bregðast við hótunum Trump og verið uggandi vegna mögulegrar hernaðaríhlutunar, þrátt fyrir að margir sérfræðingar væru á því að kostir Trump í stöðunni væru takmarkaðir. Stjórnvöld í Íran höfðu fyrir sitt leyti hótað því að gera árásir á herstöðvar Bandaríkjamanna á svæðinu ef Bandaríkin gerðu árásir á Íran. Lofthelginni yfir Íran var lokað um stutta stund í morgun en hefur verið opnuð á ný.
Íran Bandaríkin Donald Trump Mótmælaalda í Íran Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira