Smurði kúk um allt stofugólfið þar til hann kafnaði úti í horni Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. janúar 2026 11:52 Ógeðsleg sjón blasti við Kristínu Helgu, eða Dinnu eins og hún er gjarnan kölluð, þegar hún kom heim og ryksuguróbotinn Rúmbi hafði reynt að þrífa upp hundaskít í stofunni. Rithöfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir skildi hunda sína tvo eftir eina heima með ryksuguróbotnum. Þegar hún sneri aftur hafði orðið smá slys í stofunni en vélmennið gert illt verra með því að dreifa kúk um rýmið áður en hann geispaði golunni úti í horni.
Kristín Helga lenti í þessari miður skemmtilegu uppákomu á mánudagsmorgun og greindi Fésbókarvinum síðan frá henni degi síðar í færslu. „Ég deili þessu með ykkur til gamans og af því að ég er aðeins farin að glotta út í annað, en hef verið í miklu uppnámi síðan í gær. Ég skrapp sumsé í bæinn fyrir klukkan átta í gærmorgun og hleypti Lottu og Bellu út í piss og nauðsynleg hundamorgunverk. Svo fengu þær mat og skipun um að sofa þar til ég kæmi aftur,“ skrifar Kristín Helga í færslunni. „Um ellefuleytið sneri ég aftur og hvað hafði gerst? Jú, önnur hvor (líklega eldri borgarinn) hafði kúkað á stofugólfið - sem er bara sjaldgæft slys og alveg í lagi, mér að kenna og lítið mál að þrífa og skúra í hvellinum og alls ekki í frásögur færandi. Þannig skítur skeður ... En, nei, aðstæður á vettvangi voru ekki svo einfaldar.“ Ólýsanleg aðkoma í stofunni „Rúmbi ryksuguróbóti hafði rokið af stað í vinnuna... sem hann gerir aldrei 🙉 Þetta kvikindi gerir allt illa og ekkert óumbeðinn. En þarna ákvað gerviheilinn skyndilega að bruna inn í stofu og beinustu leið í kúkinn. Svo dundaði hann sér við að smyrja kúk á allt stofugólfið þar til hann kafnaði sjálfur í kúk og dó úti í horni,“ skrifar hún í færslunni. „Aðkoman var ólýsanleg. Ég áttaði mig satt að segja alls ekki strax á því hvað gerst hafði þar sem Rúmbi mókti í hvarfi. Ég virti fyrir mér buddurnar tvær sem voru tandurhreinar og sætar ... og undrandi og jafnvel miður sín, fannst mér.“ Það hafi tekið hana marga tíma að „þrífa, moka, skafa, bleyta, spreyja, skúra og skúra aftur og svo skúra meira.“ Saurgaurinn þrifinn en samt ógeðslegur Kristín Helga segist síðan klætt sig eins og raðmorðinginn Dexter í svuntu, hanska og með poka og lagt ryksuguvélmennið á hvítt plast í þvottahúsinu. „Þar var hann þrifinn með latexhönskum, eyrnapinnum og pappír. Samt er hann ennþá ógeðslegur og nú er ég að stúdera hvernig á að skrúfa hann í sundur og í öreindir til að þrífa hjólalegur. Á meðan á þessu stendur urrar hann reglulega: empty the bin, eins og það sé hans stærsta vandamál. Ef ekkert gengur ekki þá hendi ég þessum skítahaug,“ skrifar hún. „Um helgina voru deilur í skraflinu um það hvort saurgaur væri alvöru orð, en Rúmbi er saurgaur. Allan gærdaginn andaði ég bara með munninum og er að reyna að ná tökum á því að anda aftur með nefinu. Ég veit svo sem ekki hvað það gagnast að deila svona skít, en hér er kaffipása og svo held ég áfram. Góðar stundir.
Grín og gaman Hundar Gæludýr Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira