Sautján ára Glúmur leigði bíl og leitaði Bardot á frönsku rivíerunni Jón Þór Stefánsson skrifar 30. desember 2025 16:32 Glúmur Baldvinsson fann ekki Bardot í Saint Tropez, né annars staðar á frönsku ríverunni. Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins, minnist frönsku leikkonunnar og dýraverndunarsinnans Brigitte Bardot, sem lést nú á dögunum, í færslu á Facebook. Þar minnist hann þess þegar hann, sem unglingur, leitaði kvikmyndastjörnunnar um frönsku rivíeruna. „
Þegar ég var lítill var ég um skeið, langt skeið, skotinn í Brigitte Bardot. Svo þegar ég var sautján sannfærði ég vin minn í Verzló, Magga Bern, sumarið 1985 að leigja bíl í Lúxemborg og aka niður eða suður til frönsku riverunnar - nánar tiltekið Saint Tropez í von um að finna hana. Því þar bjó hún og sögð mesti dýravinur í heimi. Þar sem ég elska flestar dýrategundir - fyrir utan mannskepnuna ofl - taldi ég mig eiga sjens á að sjarmera og sannfæra hana,“ skrifar Glúmur, en umrædd leit virðist hafa gengið brösulega. „Svo við rennum í hlað við ströndina í St. Tropez. Þar sem ég hafði ekki nákvæmt heimilisfang ákvað ég að ganga um ströndina og bara finna hana undir sólhlíf. Það gekk ekki vel. Við gengum um nektarströnd fulla af forljótu eldgömlu fólki við grafarbakkann svo ég gafst upp og fann upp nýtt plan. Sumsé að skanna ströndina alla frá Monaco í austri til Montpellier í vestri.“ Glúmur uppgötvaði á einhverjum tímapunkti í þessu ferðalagi sínu að hann hefði læst bíllykilinn í skottinu. „Nú voru góð ráð dýr. Ég fann stóran þýskan mann vitandi að þaðan koma bestu verkfræðingar álfunnar og bað um hjálp. Hans svar á bjagaðri ensku: Kleine jung man. You got a brain and two hands? Richtich? Og svo fór hann. Svo ég og Maggi urðum strandaglópar í hræðilegu hjólhýsi umkringdir nöktum þýskum og breskum gamlingjum næstu tvo daga eða þar til þorpið opnaði aftur eftir helgi og ég fór að hugsa um komast útúr þessu helvíti og braut allar rúður í bílnum fann lykillinn og ók norður til Lúxemborgar. Skilaði bílnum og borgaði reikninginn. Með hjálp afa.“ Glúmur segir að í kjölfarið hafi hann áttað sig á því að Bardot, sem mun hafa verið fimmtug um þær mundir, væri líklega of gömul fyrir sig. „En nú heyri ég að konan sem missti af mér ungum sé horfin á brott. Blessuð sé minning kyntáknsins Brigette Bardot. Kynþokki hennar barst alla leið til Barnaskóla Ísafjarðar. Geri aðrar betur. Mun seint gleyma þessum næstum því kynnum okkar. Mais moi, je t'taime encore!“
Frakkland Einu sinni var... Bíó og sjónvarp Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira