„Það kom aldrei neitt annað til greina“ Kári Mímisson skrifar 30. nóvember 2025 17:13 Þórey Anna þurfti ekki að þerra tárin eftir þennan leik. sýn skjáskot Þórey Anna Ásgeirsdóttir var að vonum glöð þegar hún mætti í viðtal eftir sannfærandi sigur íslenska liðsins gegn Úrúgvæ nú í dag. „
Mér líður ógeðslega vel, miklu betur heldur en eftir síðasta leik. Ég er mjög ánægð að við séum komnar í þennan milliriðil sem verður hörku verkefni sem við erum spenntar að takast á við.“ Spurð að því hvernig henni hafi þótt leikurinn spilast brýnir Þórey okkur fyrir því að þó svo að andstæðingurinn hafi ekki verið sá sterkasti í kvöld þá skiptir það miklu að klára verkefnið almennilega og ekki gefa nein óþarfa færi á sér. „Það var það ekki en það er rosalega mikilvægt í svona leikjum að vera með einbeitinguna í lagi því að þetta getur alveg farið í eitthvað bull. Þær spila handbolta sem að við erum ekki vanar að spila á móti. Mér fannst við gera þetta ágætlega í dag, skiluðum þessum sigri og erum komnar í milliriðla.“ Þórey fékk tækifæri í síðasta leik til að jafna leikinn gegn Serbum þegar tíu sekúndur voru eftir af leiknum en því miður fyrir okkur þá varði sú serbneska í markinu frá Þóreyju. „Ég losaði mig við svekkelsi síðasta leiks um kvöldið og það kom aldrei neitt annað til greina en að ég myndi ekki nýta færin mín hér í dag. Ég er með það sterkan haus að ég myndi taka þetta færi aftur og skora úr því.“ Markmiðinu í riðlakeppninni náð, hver eru markmiðin fyrir milliriðilinn? „Góð spurning. Við eigum eftir að skoða þetta. Við eigum góða möguleika en þetta verða erfiðir leikir sem við erum spenntar fyrir. Fyrst munum við fagna þessu aðeins og fá okkur eitthvað annað en þennan mat á hótelinu“ sagði Þórey en viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Þórey Anna með ánægjusvip
HM kvenna í handbolta 2025 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira