Tugir látnir eftir flóð í Taílandi og Indónesíu Samúel Karl Ólason skrifar 28. nóvember 2025 16:34 Rigningin í suðaustur Asíu hefur verið gífurlega mikil á síðustu dögum. AP/Arnun Chonmahatrakool Að minnsta kosti 145 eru látnir eftir mikil flóð í suðurhluta Taílands. Dregið hefur úr flóðunum og eru gífurlegar skemmdir að líta dagsins ljós. Áætlað er að flóðin hafi haft áhrif á um 1,2 milljónir heimila og um 3,6 milljónir manna í tólf héruðum Taílands.
Songkhlahérað varð hvað verst úti en þar stendur fjöldi látinna í 110. Mikil rigning síðustu daga olli flóðunum en vatnið og skemmdir á innviðum hafa gert björgunarstörf erfið. Samkvæmt AP fréttaveitunni hefur ástandið þó skánað nokkuð. Aðgengi björgunarsveitarmanna að svæðum þar sem flóðin urðu mikil hefur aukist og látnum hefur fjölgað hratt samhliða því, þar sem fleiri lík finnast í vatninu. Í einhverjum tilfellum mældist rigningin 630 millimetrar yfir þrjá daga, samkvæmt frétt Reuters. Vatn flæddi niður hlíðar Taílands og héldu fráveituskurðir ekki undan. Fréttaveitan hefur eftir íbúum á svæðinu að margir hafi misst aleiguna í flóðunum. Aurskriður haffa leikið fólk á Súmötru í Indónesíu grátt.AP/Nazar Chaniago Rigningin lék þó ekki eingöngu Taílendinga grátt en að minnsta kosti 174 eru látnir eftir flóð og aurskriður á Súmötru í Indónesíu. Tuga er saknað. AP segir að rúmlega 3.200 hús hafi orðið fyrir aurskriðum þar en skemmdirnar hafa einnig komið verulega niður á björgunarstarfi.
Taíland Indónesía Náttúruhamfarir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Sjá meira