Mario sleit krossband: „Gríðarlegt áfall fyrir Njarðvík“ Sindri Sverrisson skrifar 15. nóvember 2025 10:02 Mario Matasovic hefur varla misst af leik síðan að hann kom inn í lið Njarðvíkur fyrir 7-8 árum. vísir/Anton Tímabilinu er því miður lokið hjá íslenska ríkisborgaranum Mario Matasovic, leikmanni Njarðvíkur í Bónus-deild karla í körfubolta. Hann fór sárkvalinn af velli í sigrinum gegn KR á fimmtudaginn.
Skoðun hefur nú leitt í ljós að Mario sleit krossband í hné. Þrátt fyrir að spila minna en tuttugu mínútur gegn KR náði Mario að enda stiga- og frákastahæstur, með 20 stig og sjö fráköst, áður en hann var studdur af velli vegna meiðsla sem strax var ljóst að væru grafalvarleg. „Hann var búinn að spila nánast fullkominn leik áður en hann meiddist. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Njarðvíkurliðið. Þetta er leikmaður sem er ekkert hægt að skipta út, því hann er Íslendingur,“ sagði Teitur Örlygsson í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport í gærkvöld. Í þættinum var ekki orðið alveg ljóst hvort krossband hefði slitnað en það hefur nú verið staðfest og ljóst að langt og strangt endurhæfingarferli bíður Mario. Njarðvík þarf svo að finna nýjar leiðir til að sækja sigra: „Hann er hjartað og sálin í þessu liði. Það er rosaleg orka í kringum hann, bæði varnarlega og sóknarlega. Hann er kvikur á löppum en rosalega sterkur. Þetta er sorglegt,“ sagði Sævar Sævarsson en í Körfuboltakvöldi var sýnt frá því þegar Mario meiddist og mátti heyra sársaukaöskur hans: „Hann kallar ekki allt ömmu sína svo að sársaukinn hefur verið mikill,“ sagði Sævar.
Bónus-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Sjá meira