Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2025 11:33 Ólafur Ólafsson var í beinni útsendingu úr búningsklefa Grindvíkinga. Sýn Sport Ólafur Ólafsson og félagar í Grindavíkurliðinu eru ósigraðir á toppi Bónus deildar karla í körfubolta og hafa litið frábærlega út í upphafi tímabilsins.
Ólafur skoraði tuttugu stig í sigri á Keflavík í síðasta leik og fékk líka mikið hrós í Körfuboltakvöldi. „Ólafur Ólafsson er að koma inn í þetta tímabil með látum. Frábær í kvöld. Hann var lengi í gang á síðasta tímabili en hann er bara klár í slaginn núna,“ sagði Stefán Árni Pálsson. Þessir bræður geta bara unnið leiki „Óli er náttúrulega búinn að vera lengi bara eitt mesta ‚wildcard' í þessari deild. Ég man að Lalli bróðir hans [Þorleifur Ólafsson] var svona líka. Þessir bræður geta bara unnið leiki,“ sagði Benedikt Guðmundsson, sérfræðingur í Körfuboltakvöldi. Klippa: Óli Óla frábær og síðan í beinni úr búningsklefanum „Mér fannst Óli vera stórkostlegur hérna, kemur með risakörfur og karfa frá Óla, hún telur bara tvöfalt fyrir Grindavík. Þegar hann er á svona degi þá sé ég þá ekki tapa, sérstaklega heima,“ sagði Benedikt. Gerir honum gott „Óli hefur þroskast. Hann var þetta ‚wildcard' þar sem hann tók alveg aragrúa af bölvuðum vitleysum ákvörðunum þegar hann var yngri. Núna er hann einhvern veginn í flæðinu. Ég held að það geri Óla rosalega gott að vera með svona góða leikmenn í kringum sig, sérstaklega Kane. Hann gerir svo lítið af mistökum og spilar á styrkleikum sínum,“ sagði Teitur Örlygsson, sérfræðingur í Körfuboltakvöldi. „Hann gerir þetta allt í réttu flæði og það eru svona hlutir sem gera að verkum að Grindavík er búin að vinna alla leikina,“ sagði Teitur. Afmælisbarnið að fá sér borgara Eftir að hafa lofað Ólaf og mikilvægt framlag hans til Grindavíkurliðsins þá fékk Körfuboltakvöld hann svo í beinni útsendingu úr búningsklefanum hjá Grindavík. „Við erum komin í samband aftur á móti við Grindavík. Við erum komin í samband við Ólaf inni í klefa hjá Grindvíkingum. Kristófer Breki, afmælisbarnið, er að fá sér hamborgara við hliðina á Óla. Óli, geggjaður sigur. Hvernig er stemningin í klefanum núna,“ spurði Stefán Árni. Hér fyrir ofan má sjá umfjöllunina um Óla og viðtalið við hann úr búningsklefanum.
Bónus-deild karla Grindavík Körfuboltakvöld Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Íslenski boltinn Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ Sjá meira