Kókaín, MDMA og mikið magn ketamíns í Norrænu Árni Sæberg skrifar 14. október 2025 10:21 Efnin voru flutt til landsins með Norrænu. Vísir/Jóhann K. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö stór fíkniefnamál sem tengjast komu Norrænu til Seyðisfjarðar í september. Alls varða málin 27 kíló af kókaíni, ketamíni og MDMA. Aldrei hefur meira magn ketamíns verið haldlagt í einu.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá embættinu segir að tæplega sjö kíló af kókaíni hafi fundist í bifreið við eftirlit tollgæslu og lögreglu á Austurlandi fyrri hlutann í september. Einn maður hafi verið handtekinn á Seyðisfirði í kjölfarið og annar síðar á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem handtekinn var á Seyðisfirði sæti gæsluvarðhaldi en hinn hafi verið látinn laus eftir húsleit og yfirheyrslu. Rannsókn málsins sé langt komin. Langmesta magn ketamíns sem lagt hefur verið hald á Í seinna málinu hafi verið lagt hald á fimmtán kíló af ketamíni og fimm kíló af MDMA-kristal. „Þetta er langmesta magn ketamíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi. Efnin fundust í bifreið við eftirlit lögreglu og tollgæslu þann 19. september. Þrír voru handteknir vegna málsins, ökumaður og tveir aðrir. Allir þrír hafa sætt gæsluvarðahaldi frá því málið kom upp.“ Sérsveitin aðstoðaði Málin hafi verið unnin í samstarfi Lögreglunnar á Austurlandi, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fari nú með rannsóknarforræði málanna. Þá hafi Lögreglan á Norðurlandi eystra og Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðað við aðgerðir seinna málsins. Allir hinir handteknu séu erlendir ríkisborgarar en hluti þeirra sé búsettur hér á landi.
Norræna Fjarðabyggð Fíkniefnabrot Lögreglumál Smygl Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar Sjá meira