Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. október 2025 09:33 Frá flugslysaæfingu á Reykjavíkurflugvelli árið 2022. Isavia Umfangsmikil flugslysaæfing verður haldin á Reykjavíkurflugvelli í dag. Helstu viðbragðsaðilar koma að æfingunni en gera má ráð fyrir að þátttakendurnir verði yfir þrjú hundruð.
Æfingin stendur yfir á milli tólf og fjögur í dag. Slysavettvangur verður settur upp, braki komið fyrir og eldur kveiktur til að skapa sem raunverulegastar aðstæður. Ef íbúar í grennd við flugvöllinn sjá reyk stíga upp frá Reykjavíkurflugvellinum má gera ráð fyrir að það sé vegna æfingarinnar. Almannavarnir, Isavia, starfsfólk Reykjavíkurflugvallar, björgunarsveitir, starfsfólk Landspítalans og heilbrigðisstarfsfólk, lögregla, slökkvilið, Landhelgisgæslan og Rauði krossinn koma að æfingunni. Að auki verða sjálfboðaliðar að leika slasað fólk á vettvangi. Búast má því við aukinni umferð viðbragðsaðila nærri flugvellinum meðan á æfingunni stendur. „Á þriggja til fjögurra ára fresti er haldin stór flugslysaæfing á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem boðið er upp á áætlunarflug. Tvær til fjórar æfingar eru haldnar á hverju ári. Isavia og viðbragðsaðilar hafa haldið á níunda tug flugslysaæfinga frá árinu 1996. Æfingin á Reykjavíkurflugvelli er sú þriðja á þessu ári en í apríl var æfing á Vestmannaeyjaflugvelli og í september á Þórshafnarflugvelli. Síðast var æfing á Reykjavíkurflugvelli í október 2022,“ segir í fréttatilkynningu frá Isavia. Næstu æfingar verða á flugvöllunum á Akureyri, Ísafirði og Vopnafirði.
Reykjavíkurflugvöllur Lögreglan Slökkvilið Björgunarsveitir Isavia Landhelgisgæslan Landspítalinn Almannavarnir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira