Flautumark í Breiðholti Valur Páll Eiríksson skrifar 25. september 2025 20:42 Mosfellingar gátu fagnað í kvöld. Vísir/Jón Gautur Afturelding vann 37-36 sigur á ÍR er liðin áttust við í Olís-deild karla í Breiðholti í kvöld. Sigurmarkið skoruðu gestirnir á lokasekúndu leiksins.
Mikið stuð var í Breiðholtinu í kvöld þar sem spennan var töluverð og mikið skorað. Afturelding byrjaði umtalsvert betur þar sem liðið skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins og staðan 10-3 þegar fyrri hálfleikur var tæplega hálfnaður. Munurinn varð mest átta mörk en þegar hálfleiksflautið gall stóð 21-15 fyrir Aftureldingu. ÍR-ingar tóku við sér eftir hlé á meðan Mosfellingar voru á hælunum. ÍR saxaði jafnt og þétt á forskotið og tókst loks að jafna í 32-32 þegar rúmlega sex mínútur lifðu leiks. Í kjölfarið komst ÍR yfir í fyrsta sinn, 33-32, en Afturelding svaraði og komst 36-34 yfir þegar 90 sekúndur voru eftir. ÍR svaraði með tveimur mörkum og aðeins 15 sekúndur voru eftir þegar Jökull Blöndal Björnsson jafnaði. Gestirnir höfðu engin leikhlé og geystust upp. Ágúst Ingi Óskarsson skoraði sigurmarkið þegar sekúnda var eftir og tryggði Aftureldingu dramatískan sigur, 37-36. Ihor Kopyshynskyi var markahæstur Aftureldingar með átta mörk en Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sjö. Bernard Kristján Owusu Darkoh skoraði tíu fyrir ÍR en Jökull Blöndal níu. Afturelding er með fullt hús á toppi deildarinnar eftir fjóra leiki en ÍR með eitt stig í ellefta sæti.
Olís-deild karla Afturelding ÍR Handbolti Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira