Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Kjartan Kjartansson skrifar 17. september 2025 14:32 Hulda Elma Eysteinsdóttir, bæjarfulltrúi L-listans á Akureyri, (f.m.) með Sigurði Inga Jóhannssyni, þáverandi innviðaráðherrao og Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri. Isavia Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti lausnarbeiðni Huldu Elmu Eysteinsdóttur, oddvita L-listans og varaformanns bæjarráðs, á fundi sínum í gær. Hún er annar oddviti listans sem segir af sér á kjörtímabilinu.
Afsögn Huldu Elmu tekur gildi miðvikudaginn 24. september. Í fundargerð bæjarstjórnar frá því í gær kemur fram að Hulda Elma segi af sér vegna þess að hún er að flytja úr sveitarfélaginu. Hún skipaði annað sætið á framboðslista L-listans í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022. Listinn hlaut flest atkvæði allra flokka og náði inn þremur mönnum í bæjarstjórn. Myndaði listinn meirihluta þar með fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Hulda Elma varð oddviti L-listans eftir að Gunnar Líndal Sigurðsson sagði af sér sem bæjarfulltrúi eftir aðeins um hálft ár í embætti. Vísaði hann til mikilla anna sem forstöðumaður rekstrar á sjúkrahúsinu á Akureyri sem ástæðu afsagnarinnar. Staðarmiðillinn Akureyri.net segir að Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir taki sæti Elmu sem aðalmaður í bæjarstjórn en hún skipaði fimmta sæti L-listans fyrir þremur árum. Halla Björk Reynisdóttir, sem var í þriðja sæti á L-listanum fyrir kosningar, tekur sæti Huldu Elmu sem varaformaður bæjarráðs. Andri Teitsson kemur í stað hennar í velferðarráði Akureyrar og verður varamaður Höllu Bjarkar.
Akureyri Sveitarstjórnarmál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira