Áskorun

50+: Grái fiðringurinn hjá kallinum ekkert endi­lega vesen

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Allt tal um gráa fiðringinn eða miðlífskrísu karlmanna er frekar neikvætt og jafnvel niðrandi. En kannski snýst stóra á skorunin einfaldlega um breytt viðhorf og síðustu árin hefur umræðan á Norðurlöndunum verið að þróast í þá áttina.
Allt tal um gráa fiðringinn eða miðlífskrísu karlmanna er frekar neikvætt og jafnvel niðrandi. En kannski snýst stóra á skorunin einfaldlega um breytt viðhorf og síðustu árin hefur umræðan á Norðurlöndunum verið að þróast í þá áttina. Vísir/Getty

Við erum flest með ákveðna ímynd af karlmönnum með gráa fiðringinn. Sjáum þá oft fyrir okkur rembast við að reyna að halda sér mjög ungæðislegum. Stunda jafnvel ræktina af offorsi eða byrja á nýrri hreyfingu og útivist; Með stæl.

Sumir ganga skrefinu enn lengra; Kaupa sér sportbíl, mótorhjól eða taka einhverja aðra glænýja stefnu í kaupum og fjárfestingum.

Svo ekki sé síðan talað um skilnaði eða framhjáhöld. Því eitt af því sem loðir líka við ímyndina um gráa fiðringinn eru þess lags sögur.

En getur verið að viðhorfið okkar gagnvart gráa fiðringnum sé mögulega kolrangt? Og jafnvel óréttlátt? Því rýnum aðeins í málin.

Það er margt erfitt og flókið sem getur fylgt þessu tímabili fyrir karlmenn. Til dæmis tilfinningar eins og leiði, einmanaleiki, efasemdir um sjálfan sig og kvíði.

Eftirsjá er líka algeng líðan; Að sjá á eftir einhverju sem aldrei varð. Tilfinningar eins og að þá vanti ákveðna lífsfyllingu.

Líkamleg einkenni eru síðan sögð vera atriði eins og orkutrap, þyngdartap eða þyngdaraukning og minni kynhvöt.

Sumir tala um að vilja einangra sig meira eða að þeir verði skapstyggari. Sem hvoru tveggja getur verið vísbending um hormónabreytingar.

Einhverjir taka upp á því að skipta um starf og leitast við að komast í nýtt umhverfi vinnutengt.

Sumsé; Þetta eru alls konar tilfinningar og með því að gúggla midlife crisis (í. miðlífskrísa) er hægt að finna endalausar upplýsingar til viðbótar um hversu flókinn tími þetta getur verið fyrir fólk; Því jú; Auðvitað getur svona tímabil líka reynt á hjónabandið. Og myndað togstreitu á milli para.

En yfir í viðhorfið okkar:

Almennt er tal um gráa fiðringinn nokkuð neikvætt og jafnvel niðrandi. Það sama á við orðið miðlífskrísa; orð sem er neikvætt í eðli sínu.

Á Norðurlöndunum má hins vegar gæta umræðu sem mögulega er að kalla fram ákveðna viðhorfsbreytingu gagnvart þessu æviskeiði karla. Þannig að í staðinn fyrir að tala um þetta tímabil sem krísu, er útgangspunkturinn frekar sjálfsvinna og/eða þroskaferli.

Greinin A man in Crisis or Crisis of Men? eftir hinn sænska Kristofer Hansson er til dæmis ágætis um umfjöllun þar sem ekki er verið að tala um þetta tímabil á niðrandi og neikvæðum nótum. Heldur miklu frekar út frá þeim útgangspunkti að karlmenn séu hvattir til  sjálfsræktar og sjálfsvinnu. Að nýta þetta tímabil til valdeflingar.

Fleiri fræðigreinar má finna á Norðurlöndunum sem tala í þessa átt. Sem er jákvætt því í stað þess að ræða um karlmenn með gráa fiðringinn eins og það sé eitthvað vesen eða neikvætt, eru karlmenn hvattir til að spyrja sig spurninga eins og 

Hver vil ég vera næsta 20 árin?

Og hver 50+ hefur ekki gott af því að spyrja sig að þessu?

Hjónabandið og togstreitan

En þótt það gæti verið okkur hollt að horfa á þetta tímabil karlmanna öðruvísi og jákvæðari augum, er ekki þar með sagt að togstreita myndist ekki í hjónabandinu. 

Hér eru ýmsar leiðir færar og þá ekki síst að leita faglegrar aðstoðar. Sem í dag telst svo sannarlega ekkert feimnismál og getur meira að segja verið mjög skemmtilegt.

Opin og heiðarleg samskipti skipta fyrst og fremst öllu máli. Þar sem væntingar, ánægja/óánægja, tilfinningar og langanir eru ræddar í þaula.

Allar lífstílsbreytingar í þágu heilsunnar eru líka af hinu góða. Hvort sem um ræðir aukna hreyfingu, holllara matarræði eða betri svefn.

Númer eitt, tvö og þrjú er að opna umræðuna. Það er ekkert meira feimnismál að ræða þessi mál frekar en breytingarskeið kvenna.


Tengdar fréttir

50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt

Flest okkar þekkjum til ungs fullorðins fólks sem velur að búa í foreldrahúsum til þess að leggja fyrir. Stundum fyrir sinni fyrstu eign, stundum fyrir ferðalögum um heiminn, stundum fyrir einhverju öðru; Ástæðurnar geta verið ýmsar.

50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu

Við kunnum oft ekki við að segja það upphátt ef okkur leiðist í einkalífinu. Því þá finnst okkur við hljóma eins og það sé eitthvað svo alvarlegt að.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.