Körfubolti

Dani Rodriguez búin að semja við Njarð­vík

Smári Jökull Jónsson skrifar
Dani Rodriguez í leik með íslenska landsliðinu en hún mun leika með Njarðvík á næsta tímabili.
Dani Rodriguez í leik með íslenska landsliðinu en hún mun leika með Njarðvík á næsta tímabili. Vísir/Anton Brink

Bikarmeistarar Njarðvíkur eru heldur betur búnir að styrkja sig fyrir næsta tímabil því nú rétt í þessu var tilkynnt að Dani Rodriguez hefði samið við félagið til næstu tveggja ára.

Dani Rodriguez er vel þekkt í íslenska körfuknattleiksheiminum því hún hefur leikið með KR, Stjörnunni og Grindavík hér á landi. Þá lék hún sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd síðasta haust eftir að hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt árið 2023. Hún lék með Fribourg Basket í svissnesku deildinni í vetur.

„Við erum vissulega að gera taktíska breytingu á meistaraflokki kvenna með þessari ráðningu. Dani er þekkt stærð í íslenska boltanum og við í Njarðvík stefnum áfram á framfarir og baráttu á meðal þeirra bestu,“ er haft eftir Einari Jónssyni formanni körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur í yfirlýsingu félagsins.

Dani mun einnig taka við þjálfun nokkurra yngri flokka Njarðvíkur en hún hefur getið sér gott orð sem þjálfari og meðal annars þjálfað yngri landslið Íslands. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Njarðvík.

Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur er ánægður með liðsstyrkinn.

„Hér erum við ekki einungis að fá frábæran leikmann heldur einnig einstakling sem er fær um að gefa vel af sér í allt starfið okkar. Hún er líka öflugur þjálfari og iðkendur félagsins munu njóta góðs af því. Kvennaliðið okkar er ríkjandi bikarmeistari og silfurlið Íslandsmótsins og því er það efst á dagskrá að byggja ofan á öflugt tímabil,“ segir Einar Árni er á leið í sitt annað tímabil sem þjálfari Njarðvíkur.

Ljóst er að Njarðvík mætir með feykilega sterkt lið til leiks á næsta tímabili. Liðið samdi á dögunum á nýjan leik við Brittany Dinkins en hún var einn besti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili. Þá skrifuðu Krista Gló Magnúsdóttir og Eygló Óskarsdóttir sömuleiðis undir nýja samninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×