Innlent

Styður til­lögur að rót­tækum breytingum á byggingareftirliti

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Sigurjón

Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að sér lítist vel á tillögur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um róttækar breytingar á byggingareftirliti. Grundvallaratriði sé að tryggja rétt kaupenda sem kaupi fasteignir í gölluðum nýbyggingum.

Húsnæðis -og mannvirkjastofnun kynnti í vikunni nýjan vegvísi um breytt byggingareftirlit vegna tíðra galla líkt og lekavandræða í nýbyggingum. Þar eru lagðar til róttækar breytingar á eftirlitinu og meðal annars gert ráð fyrri því að byggingareftirlit færist frá byggingarfulltrúum sveitarfélaga til óháðra skoðunarstofa á markaði auk þess sem lagt er til að sérstök byggingartrygging verði tekin upp í stað núverandi starfsábyrgðatryggingar. 

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segir að sér lítist vel á tillögurnar. „Og það er orðið löngu tímabært að fara að tryggja neytendum öryggi gagnvart því að fjárfesta í dýrustu fjárfestingu okkar allra sem erum svona meginþorri almennings, við megum náttúrulega gera ráð fyrir því að við séum að fá vatns- og vindheldar eignir og að eignin okkar sé ekki orðin ónýtt jafnvel eftir tíu ár.“

Á sama tíma þurfi að einfalda byggingaregluverk og tryggja uppbyggingu húsnæðis. Inga segist telja að eftirlit verði betur tryggt sé það innt af hendi af skoðunarstofum á markaði.

„Þetta verður sjálfstæð útttekt sem verður þá í raun já, hlýtur að vera síður hlutdræg ef svo má að orði komast, við viljum nú gjarnan ekki að sá sem ræni bílnum dæmi í því sjálfur, þannig við erum nú að reyna að sjá það sem við förum öll fram á, reyna að hafa hlutina eins skilvirka og hugsast getur, hlutlausa ef svo má að orði komast, þannig það verði tryggt að neytandinn fái að njóta vafans.“

Ráðherra segist munu gera sitt til þess að koma tillögunum til framkvæmda. Tillaga að nýrri byggingatryggingu sé grundvöllur þess að réttur neytenda verði tryggður.

„Til þess einmitt að tryggja það að byggingaverktakinn geti staðið við þær skuldbindingar sem hann gefur kaupanda sínum með því að byggja fyrir hann fasteign.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×