Klósettpappír út um allt á vellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. apríl 2025 10:02 Tryggvi Snær Hlinason með bikarinn sem Bilbao Basket vann en til hliðar má sjá klósettpappírinn út um allt á vellinum. fibaeuropecup Tryggvi Snær Hlinason og félagar í spænska liðinu Bilbao Basket tryggðu sér á miðvikudagskvöldið fyrsta Evróputitil félagsins við mjög krefjandi aðstæður í Grikklandi.
Bilbao tapaði seinni leiknum á móti gríska liðinu PAOK, 82-84, í úrslitaleik FIBA Europe bikarsins en vann einvígið samanlagt 154-149 þökk sé sjö stiga heimasigri í fyrri leiknum. PAOK spilar heimaleiki sína í PAOK Sports Arena sem er átta þúsund manna höll í Þessaloníku. Það er óhætt að segja að aðstæðurnar hafi verið erfiðar enda fékk gríska liðið frábæran stuðning í leiknum. Stuðningsmenn PAOK gáfu tóninn strax í upphafi leiksins með því að henda klósettpappír inn á völlinn eftir uppkastið. Fyrir vikið var klósettpappír út um allt á vellinum og því þurfti að gera hlé á leiknum eftir aðeins nokkrar sekúndur til að hreinsa völlinn. Tryggvi var að koma til baka eftir meiðsli og byrjaði því á bekknum. Hann var því ekki inn á gólfinu þegar klósettpappírinn kom fljúgandi úr öllum áttum. Tryggvi stóð sig vel þær sextán mínútur sem hann spilaði, skoraði sjö stig, tók fimm fráköst, gaf tvær stoðsendingar og varði eitt skot. Hér fyrir neðan má sjá þessar upphafssekúndur í leiknum. View this post on Instagram A post shared by FIBA Europe Cup (@fibaeuropecup)
Spænski körfuboltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Sjá meira