Fjölmiðlanefnd í stað Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar Ásdís Bergþórsdóttir skrifar 7. janúar 2025 11:03 Til er stofnun sem heitir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og er stofnun innan Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sér m.a. um læknisfræðilegt greiningarkerfi (ICD) sem heilbrigðisstarfsmönnum hér á landi ber lagaleg skylda til að nota. Ef taka þarf upp nýjar læknisfræðilegar greiningar fer fram vinna hjá Alþjóðheilbrigðismálastofnuninni sem skilgreinir þá nýja sjúkdómsgreiningu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ákvað á sínum tíma að taka ekki upp skjáfíkn eða aðrar slíkar fíknir, nema Gaming Disorder, tölvuleikjaröskun. Vinnan var alþjóðleg og tók mörg ár. Eftir að hafa hlustað á röksemdir starfsmanns Fjölmiðlanefndar sem er með B.A. próf í fjölmiðlafræði þá kvað hann Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina svo í kútinn að við verðum verulega að efast um getu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar til að vinna að heilbrigðismálum. Starfsmaður Fjölmiðlanefndar sagði: „Þetta [skjáfíkn] er svo sem ekki á lista yfir fíknir. En svo er spurningin: Erum við ekki farin að upplifa þetta dálítið sem skjáfíkn? Og ef við hlustum svolítið á innsæið þá held ég að við séum alveg farin að sjá ansi mörg merki um það.“ (1) „Og þegar við erum að tala um skjáfíkn, fíknin sem er ekki á lista yfir fíknir og það má aldrei segja þetta. Nú við ætlum að tala um fílinn í herberginu sem má ekki kalla fíl.“ (2) Greiningarkerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er bara listi! Eftir allt mitt sálfræðinám kemur í ljós að þetta læknisfræðilega greiningarkerfi sem á að ná yfir alla sjúkdóma er ómerkilegur listi sem byggir ekki á innsæi almennings. Eftir þessi ummæli stórefast ég um að við eigum að treysta lengur á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina um læknisfræðilegar greiningar. Mín tillaga er því: Úr því að einn starfsmaður Fjölmiðlanefndar getur leyst af fjölda manna með heilbrigðismenntun sem tóku þátt í margra ára vinnu af hverju látum við ekki Fjölmiðlanefnd taka yfir starfsemi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og laga þennan ICD-lista? Segjum okkur bara úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, hættum við þetta greiningarkerfi – ég meina lista – og látum Fjölmiðlanefnd um að skilgreina hvað eru sjúkdómar. Þá spörum við okkur fjárútlát til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Með tíð og tíma gætum við svo ráðið fólk útskrifað í fjölmiðlafræði sem lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og aðra heilbrigðisstarfsmenn. Þetta myndi stórspara fé því menntun heilbrigðisstarfmanna er dýr. Ég vil líka benda á að ýmsar læknisfræðilegar skoðanir (t.d. krabbameinsskimun, ristilspeglun, heilaskönnun) mætti leysa af með innsæi því innsæi kostar ekki neitt. Það er sem betur fer mikil sátt í samfélaginu um frammistöðu Fjölmiðlanefndar. Fjölmiðlanefnd gefur alltaf skýrar og greinargóðar upplýsingar eins og að skjáfíkn sé bara víst fíknisjúkdómur. Þetta er til fyrirmyndar því það er alltaf best – eins og Fjölmiðlanefnd veit – að hafa ein skýr sönn skilaboð í fjölmiðlum. Vandinn hefst þegar almenningur fær mörg sjónarmið og þarf að taka afstöðu. Þess vegna erum við svo þakklát að Fjölmiðlanefnd hafi tekið rétta afstöðu og sleppt okkur við mismunandi sjónarhorn í þessum skjánotkunarmálum. Mikið væri nú gott ef nefndin gæti afgreitt stjórnmálin á sama hátt og leiðbeint okkur um hvað er rétt þar. En sama hvað því líður þá verð ég að leggja til að öll heilbrigðisfræðsla, heilbrigðisaðvaranir og álíka verði sett á ábyrgð Fjölmiðlanefndar. Stjórnmálin mega bíða aðeins. Lýðheilsuhlutverk fjölmiðlanefndar er hins vegar óumdeilt og í það þarf engan menntaðan í lýðheilsu eða heilbrigðismálum til að sjá um það, aðeins fólk sem flytur hina einu réttu skoðun. Ég, eins og almenningur, styð rétta fræðslu til almennings um heilbrigðismál, byggða á innsæi! Enginn heilbrigður maður getur viljað fræðslu um fíknisjúkdóma eða aðra sjúkdóma út frá sjónarmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Landlæknisembættið eða einhver önnur stofnun gæti svo skutlað inn á vefinn hjá sér leiðbeiningum um foreldrastillingar á helstu öppum og forritum sem börn nota á íslensku. Það vantar einfaldar, skýrar leiðbeiningar á íslensku fyrir foreldra sem eru ekki vel tæknilæsir á ensku og það er alveg skiljanlegt að Fjölmiðlanefnd sé of upptekin í heilbrigðismálunum til að standa í svoleiðis. Að lokum vil ég þakka Fjölmiðlanefnd fyrir að koma með skýrar og vandaðar skilgreiningar á því hvernig á að skilgreina sjúkdóma og rjúfa þar með einokun heilbrigðisstarfsmanna á því að skilgreina sjúkdóma. Ég vona að nefndin leggi niður krabbamein á næstunni og striki það af þessum lista. Mér leiðist sá sjúkdómur mikið. Þetta er C00-C97 á listanum sem er núna í gildi á Íslandi ef þið munið það ekki úr námi ykkar! P.S. Því miður er þetta ekki sparnaðartillaga fyrir ríkisstjórnina heldur háð. 1 https://www.ruv.is/utvarp/spila/siddegisutvarpid/23825/7h2is1 á c. 14:50 mínútu 2 https://www.youtube.com/watch?v=95r1yVrzge8 á c. 11:00 mínútu Höfundur er algerlega innsæislaus sálfræðingur og það er ekki háð. Hún mun fljótlega birta grein um þær grunnspurningar sem skjáfíknisinnar hafa ekki svarað í gegnum árin. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Fjölmiðlar Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar