Skoðun

Sama fötlun en ó­lík réttindi - Aldurinn ræður úr­slitum -

Ásta Ólafsdóttir skrifar

Ímyndaðu þér tvo einstaklinga með sömu fötlun og sömu þörf fyrir akstur. Annar fatlast 66 ára og fær akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Hinn fatlast 68 ára og fær ekki sama aðgang að þjónustunni. Munurinn liggur ekki í fötluninni, samgönguhindruninni eða þörfinni. Munurinn er aldurinn.

Fólk sem fatlast eftir 67 ára aldur getur lent í því að falla undir þjónustu við aldraða en ekki þjónustu við fatlað fólk hjá sveitarfélögum. Afleiðingin getur orðið sú að einstaklingur með mikla hreyfiskerðingu fær ekki sömu akstursþjónustu og yngri einstaklingur í sambærilegri stöðu. Hvernig getur það talist réttlátt?

Í sumum sveitarfélögum er akstur eldra fólks aðeins tengdur dagdvöl eða annarri fyrir fram skilgreindri þjónustu. Stundum er sú þjónusta ekki einu sinni í boði í sveitarfélaginu. Einstaklingurinn á þá að nafninu til möguleika á akstri í þjónustu sem er ekki til staðar. Niðurstaðan er einföld og grimm. Einstaklingurinn situr heima.

Fólk kemst ekki í matvöruverslun, til læknis, í endurhæfingu, til fjölskyldu eða í félagsstarf nema með aðstoð ættingja, vina eða leigubíla. Ferðir sem flest okkar telja sjálfsagðar verða að verkefni sem krefst aðstoðar annarra, mikils kostnaðar eða flókins skipulags. Þetta snýst því ekki aðeins um akstur. Þetta snýst um frelsi, sjálfstæði og réttinn til að taka þátt í samfélaginu.

Akstursþjónustan Pant í Reykjavík er mikilvægt úrræði en mikill munur er á fargjöldum eftir því undir hvaða þjónustukerfi einstaklingur fellur. Fargjald eldra fólks er 1.690 krónur fyrir hverja ferð en 207 krónur fyrir yngri notendur. Ferð fram og til baka getur því kostað eldri einstakling 3.380 krónur.

Þótt einstaklingarnir búi í sömu borg og glími við sambærilegar samgönguhindranir fá þeir þjónustuna á ólíkum kjörum.

Íslensk lög banna mismunun vegna aldurs og fötlunar, meðal annars í félagsþjónustu og við aðgang að þjónustu. Mismunandi meðferð vegna aldurs getur aðeins talist réttlætanleg ef hún byggist á málefnalegum rökum, þjónar lögmætu markmiði og gengur ekki lengra en nauðsynlegt er.

Aldurinn einn getur því ekki verið fullnægjandi svar. Ef fólk með sambærilega fötlun og sambærilega þjónustuþörf fær ólíka þjónustu verður að vera hægt að skýra hvers vegna. Hvaða lögmæta markmið krefst þess að sá sem fatlast 68 ára fái lakari aðgang en sá sem fatlast 66 ára? Hvers vegna á tímasetning fötlunarinnar að ráða meira en raunveruleg þörf einstaklingsins?

Lög um þjónustu við fatlað fólk leggja áherslu á einstaklingsbundnar stuðningsþarfir, sjálfstætt líf og þátttöku til jafns við aðra. Það ættu því að vera fötlunin, samgönguhindrunin og raunveruleg þörf fyrir aðstoð sem ráða niðurstöðunni, ekki fæðingardagurinn.

Reykjavíkurborg og öll sveitarfélög á landinu þurfa að tryggja að umsóknir um akstursþjónustu séu metnar með einstaklingsbundnum hætti. Ef áfram verða reknar tvær þjónustuleiðir verða þær að tryggja fólki með sambærilegar þarfir sambærilegan aðgang, raunhæft þjónustuumfang og viðráðanleg kjör.

Ráðuneytið sem fer með félagsmál þarf jafnframt að skoða hvort framkvæmd sveitarfélaga samræmist jafnræði, meðalhófi og markmiðum laganna. Sérstaklega hjá minni sveitarfélögum. Ekki er nóg að réttindi séu til á pappír ef fólk kemst ekki út af eigin heimili.

Við getum fatlast á morgun. Spurningin er aðeins hvort kerfið telur að það hafi gerst nógu snemma. Fötlun verður ekki léttvægari eftir 67 ára aldur og þörfin fyrir frelsi, sjálfstæði og þátttöku hverfur ekki heldur.

Rétturinn til að komast ferða sinna má ekki ráðast af því hvenær á ævinni fólk fatlast.

Höfundur er aðstandandi.




Skoðun

Sjá meira


×