Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Stefán Árni Pálsson skrifar 26. nóvember 2024 15:15 Stuð hjá knattspyrnumanninum úti á leiknum. Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann stórkostlegan útisigur á Ítölum í undankeppni EM í gærkvöldi en leikurinn fór 81-74.
Sigurinn fer án efa í sögubækurnar en liðið tapaði fyrir Ítölum í Laugardalshöllinni á föstudaginn, með 24 stigum. Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson var í PalaBigi höllinni í Reggio Emilia í gærkvöldi og sá okkar menn landa sigrinum. Eftir leik skipti hann á treyju við körfuboltamanninn Amedeo Tessitori sem spilar með ítalska liðinu Reyer Venezia. En báðar treyjur voru með nafni Alberts aftan á. Ef marka má Instagram þá var Albert mjög sáttur með sína menn. Albert spilar fyrir Fiorentina í ítölsku seríu A-deildinni. Það er tveggja tíma akstur frá Flórens yfir til Reggio Emilia. Martin Hermannsson var að vonum mjög ánægður með sína menn eftir leikinn í gærkvöldi eins og hann lét í ljós á X-inu. ÞETTAAA LIIIIIÐÐÐÐÐÐ!!!!!!!!!!!!!— Martin Hermannsson (@hermannsson15) November 25, 2024 En Martin getur ekki leikið með íslenska landsliðinu þar sem hann er leikmaður Alba Berlin sem spilar í EuroLeague og fæst því ekki laus í landsliðsverkefni af þessum toga. En í morgun mætti Martin á æfingu hjá liði sínu í Þýskalandi. Í liðinu spila tveir Ítalir, þeir Gabriele Procida og Matteo Spagnolo. Einnig er einn Ítali í þjálfarateymi liðsins. Martin mætti því í ítölskum búningi á æfingu í morgun, aðeins til að stríða samherjum sínum.
Körfubolti Landslið karla í körfubolta Mest lesið Sauð upp úr á blaðamannafundi Hollands á EM Fótbolti Liverpool borgar fjölskyldu Jota það sem hann átti eftir af samningnum Sport Óvissan tekur við hjá Hákoni Enski boltinn Heimir og Lagerbäck sameinaðir á ný Fótbolti Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Enski boltinn Vilja allar það sem Sveindís hefur: „Margt sem ég myndi vilja taka frá þeim“ Fótbolti Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Enski boltinn Tryggði sig inn á Opna breska risamótið með mögnuðum erni Golf Tími Söndru eftir barnsburð og meiðsli: „Trúi og vona að þetta verði mitt mót“ Fótbolti Glódís með á æfingu Sport Fleiri fréttir Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Sjá meira