Sameinumst gegn þjóðarmorði Ingólfur Steinsson skrifar 26. ágúst 2024 07:31 Síonistar ætla ekki að hætta fjöldamorðum sínum á Palestínumönnum. Þeir eru studdir til þessa morðæðis af Bandaríkjunum á leið í kosningar þar sem stuðningur innlendra gyðinga virðist geta ráðið úrslitum. Og síonistar ráða miklu í þeim samtökum. Frambjóðendur Demókrata halda nú innihaldslitlar ræður um frelsi og þjóðarást meðan frambjóðandi Repúblíkana níðir andstæðinginn niður en talar að venju mest um sjálfan sig af mikilli aðdáun. Alþjóðasamfélagið er klofið; almenningur virðist í auknum mæli átta sig á því að það verður að stöðva fjöldamorðin sem hafa nú staðið yfir á ellefta mánuð. En stjórnvöld margra vestrænna ríkja virðast fylgja síonistum í blindni af ástæðum sem erfitt er að skilja, þar sem þeir haga sér nú á svipaðan hátt og þeirra gömlu kvalarar gerðu. Aðeins fáeinar vestrænar þjóðir hafa viðurkennt Palestínu sem ríki og erum við sem betur fer í þeim hópi. Ríki standi saman Mig langar að koma á framfæri hugmynd sem er kannski ekki ný af nálinni. Ef arabalöndin gætu staðið saman. Einnig þau lönd sem hafa viðkennt Palestínu. Þau eru alls 146 í heimi hér. Ef arabalöndin og hluti þessara landa, kannski flest, þau sem viðurkennt hafa Palestínu, gætu nú komið sér saman um einn hlut til að stöðva morðæðið: Að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Og dugi það ekki til, komi hótun um að segja Ísrael stríð á hendur nema þeir hætti sínum árásum. Ef slíkt gerðist færu kannski að renna tvær grímur á hina sannkristnu Kana. Mér segir svo hugur að ef tugir ríkja myndu stíga þetta skref gæti það haft þau áhrif að þeir myndu loks beita síonísku morðingjana þeirri hörku sem þarf. Því þeir hafa ekki beitt þá neinum þrýstingi. Allan tímann hafa þeir aðeins farið með þuluna um að Ísrael hafi rétt til að verja sig og lýst yfir þungum áhyggjum af mannfalli almennings og hvatt morðingjana til að vanda sig meira, minnka mannfallið, drepa færri börn, konur, gamalmenni. Og svo hafa þeir sent þeim nýjustu drápstólin fyrir milljarða dollara. Kaninn er sem sagt meðsekur í þjóðarmorðinu. Það er öllum ljóst sem vilja. Ísrael burt úr Palestínu Nú þykjast þeir vera með samkomulag sem aðeins Hamas eigi eftir að samþykkja. Það er uppsuða á gömlum samningi sem kom frá Biden í vor. Og liðleskjan Blinken er líklega í 9. árangurlausu ferðinni til Mið-austurlanda til að fara með gömlu þulurnar og hafa annars „miklar áhyggjur af föllnum“, að sjálfsögðu. Málið virðist standa þannig núna að síonistar vilji ekki yfirgefa Gazasvæðið að þjóðarmorðinu stöðvuðu sem er auðvitað eini samningurinn sem Hamas getur samþykkt eða Palestínumenn yfirleitt. Allir vita að það verður enginn friður í Landinu helga fyrr en Palestínumenn fá sitt sjálfstæða ríki og áratuga kúgun og aðskilnaðarstefnu Ísraelsmanna lýkur. Nú verður þetta að gerast. Þetta vita meira að segja bandarískir demókratar og hafa haldið á lofti. Þar er e-ð mikið að í veröldinni Þegar glæpadómstóllinn í Haag segir að verið sé að fremja þjóðarmorð í Palestínu og í framhaldinu tekur bandaríska þingið stríðsglæpamanninum Netanjahú með standandi lófataki þá er eitthvað mikið að í veröldinni. Ef tugir þjóða slitu sambandi við Ísrael og hótuðu þeim stríði ef þeir hætti ekki drápum á almenningi, gæti hugsast að mesta morðæðið færi að renna af síonistum. Því ég efast um að Bandaríkin hefðu áhuga á að verja Ísrael gegn hugsanlegri stríðsyfirlýsingu svo margra ríkja, þrátt fyrir allan sinn herafla. Nú þurfa þau lönd sem styðja glæpadómstólinn og rétt Palestínu að sameinast um refsiaðgerðir. Styrkur USA er augljóslega of mikill fyrir t.d. Íran og Líbanon eða Húta í Jemen. En ef fleiri ríki taka sig saman er hugsanlegt að bandarísk stjórnvöld hætti skilyrðislausum stuðningi sínum við ísraelska morðæðið. Við þá sem þykir þetta fáránleg og óraunhæf tillaga vil ég segja að þetta er örþrifaráð og tími þeirra er löngu runninn upp. Höfundur er tónlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Steinsson Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar