Innlent

Boða sér­stakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, segir tímasetningu bréfsins furðulega.
Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, segir tímasetningu bréfsins furðulega. Vísir/Einar

Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu

Eggert Þór Kristófersson forstjóri First Water sendi í gær bréf til bæjastjórnar Þorlákshafnar þar sem meðal annars segir að uppbygging mölunvarverksmiðju Heidelberg fari alls ekki saman við þá hágæða matvælaframleiðslu sem verið er að byggja upp við Laxabraut. Í bréfinu gagnrýnir Eggert sömuleiðis byggingu hafnar á svæði sem First Water sækir jarðsjó í ker sín.

Verksmiðjan á að rísa á nokkra kílómetra vestur af byggð í Þorlákshöfn. Allt í kring við strandlengjuna er uppbygging hafin á landeldisstöðvum fjölmargra fyrirtækja, þar á meðal GeoSalmo og Arnarlax.

Tímasetningin komi á óvart

Uppbygging mölunarverksmiðjunnar verður borin undir íbúa Ölfuss í kosningu sem fer fram samhliða forsetakosningunum. Bæjarstjórn hefur því boðað til sérstaks fundar í dag  til að ræða bréf Eggerts.

„Þetta kemur svolítið á óvart af því að þetta er búið að vera svo mikið ferli, í mjög langan tíma. Þeir hefðu nú getað komið fyrr fram með athugasemdir. Tímasetningin á þessu bréfi er svolítið sérstök í mínum huga,“ segir Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss. 

Ker First Water í forgrunni. Til stendur að reisa verksmiðjuna aðeins vestur af starfsstöð First Water, til móts við hvítt hús Lýsis við Suðurstrandaveg. Í víkinni verður byggð höfn undir starfsemina.Vísir/Einar

Betra hefði verið að fá athugasemdir fyrr í ferlinu.

„Ef þeir eru að hafa áhyggjur af ryki er örugglega meira ryk af söndunum í kring en af verksmiðjunni. Verksmiðjan er búin að fara í gegnum allt þetta ferli. Það er búið að fara í gegnum umhverfismat, það er búið að fara í gegnum Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, það er aðalskipulag, deiliskipulag og margt fleira,“ segir Gestur. 

„Þeir hefðu getað komið alls staðar inn í þetta þannig að stjórnsýslan hér hefði getað tekið þetta fyrir á annan hátt. Það er mjög öðruvísi fyrir umhverfisnefndina hjá okkur að taka fyrir mál þar sem nágrannarnir finna ekkert að þessu en svo kemur þetta þegar búið er að loka málinu.“

Komi ekki heim og saman

Oddviti minnihlutans fagnar bréfi First Water en furðar sig á að það hafi þurft til.

„Ég fagna því að þau skuli stíga fram með þessum hætti því eins og þetta hefur horft við mér kemur þetta alls ekki heim og saman. Að vera með græna matvælaframleiðslu og fiskeldi í opnum kerjum og vera svo með risavaxna grjótmulningsverksmiðju með tilheyrandi umferð vörubíla, þetta kemur ekki heim og saman,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, oddviti minnihlutans í bæjarstjórn Ölfuss.

„Mér finnst svolítið skrítið að fyrirtækin hafi þurft að benda bæjarstjórn á að þetta gangi ekki upp. Ég vona að þetta verði til þess að þetta fari frá í kosningu, því þetta þjónar ekki hagsmunum samfélagsins.“

Efar að íbúar muni sækja í þessi störf

Bæjarmeirihlutinn hefur bent á að með verksmiðjunni skapist níutíu störf og að meðallaun verði 1,4 milljónir á mánuði. Ása dregur í efa að bæjarbúar muni sækjast í þessi störf.

„Það er fyrirséð að það verða mjög mörg störf til í landeldi hjá fjölmörgum fyrirtækjum sem eru að koma sér fyrir í sveitarfélaginu. Grjótmulningsverksmiðjan er kannski ekki að bæta við breiddina og flóru starfa. Það sem við viljum sjá eru lítil og meðalstór fyrirtæki með fjölbreytta starfsemi,“ segir Ása.

„Risastór hluti íbúa í Ölfusi keyrir sig í vinnu til Reykjavíkur alla daga. Þetta eru ekki störf sem þau eru að sækja í. Ég velti því fyrir mér hvort við séum hreinlega með nóg af íbúum til að ganga í þessi störf sem eru fyrirsjáanleg.“

Bindandi kosning

Málið hefur mikið verið rætt á vettvangi bæjarstjórnar og hún klofin vegna þessa.

„Meirihlutinn hefur algjörlega talað fyrir hagsmunum þessa fyrirtækis en ekki hagsmunum íbúa, umhverfis og heildarinnar,“ segir Ása.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, oddviti minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.Vísir/Arnar

Minnihlutinn hélt í gær íbúafund til að ræða meðal annars bréf Eggerts, þar sem fulltrúar fleiri hagsmunaaðila komu til að taka þátt í umræðu - þar á meðal Landverndar og Hafrannsóknarstofnun. Ása segir meirihlutann hafa gagnrýnt þennan fund.

„Þeirra sjónarmið hefur verið að fyrirtækið fái að stýra því hvernig málið er kynnt en á sama tíma er sveitarfélagið að boða til íbúakosninga og það er á ábyrgð sveitarfélagsins að kynna þau sjónarmið sem íbúar eru að fara að kjósa um.“

Hvort mölunarverksmiðjan verður byggð eður ei ræðst í kosningunni sem hefst á laugardag.

„Kosningin er bindandi, þannig að annað hvort verður [verksmiðjan] eða ekki,“ segir Gestur. 


Tengdar fréttir

Segir seinlæti First Water stórfurðulegt

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Cement, furðar sig mjög á yfirlýsingu Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra First Water hf um að starfsemi á landeldi og mölunarverksmiðjunnar geti ekki farið saman.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×