Lífið

Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auð­vitað geggjað hlut­verk“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lolla fer með hlutverk tannlæknisins í söngleiknum Litla hryllingsbúðin á Akureyri í haust.
Lolla fer með hlutverk tannlæknisins í söngleiknum Litla hryllingsbúðin á Akureyri í haust. vísir/valli

Leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir, oft þekkt sem Lolla, mun fara með hlutverk tannlæknisins í söngleiknum Litla hryllingsbúðin í uppsetningu Leikfélags Akureyrar í Samkomuhúsinu í október næstkomandi. Leikstjórn verður í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar.

„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk og að fá að vera með Bergi leikstjóra og hans áhöfn er bara æði,“ segir Ólafia Hrönn.

„Ég hlakka mikið til að ganga til liðs við Leikfélag Akureyrar. Ég hef leikið í fallega Samkomuhúsinu og veit að hljómburðurinn er sérstaklega góður. Nú fæ ég að æfa þar upp leikrit! Það er svakalega notaleg tilhugsun að fá að dvelja svona lengi á Akureyri.“ 

Söngleikurinn Litla Hryllingsbúðin eftir Howard Asman og Alan Menken hefur farið sigurför um heiminn frá því að hann var frumsýndur á Broadway árið 1982 enda hefur hann allt sem prýðir bestu söngleiki; krassandi sögu, heillandi persónur og frábæra tónlist.

Þá mun Kristinn Óli Haraldsson, eða Króli, fara með hlutverk Baldurs blómasala. 

Söngleikurinn var fyrst fluttur hér á landi af Hinu leikhúsinu árið 1985 í Gamla bíói en næstu frumsýningar voru í Borgarleikhúsinu árið 1999 og og hjá Leikfélagi Akureyrar árið 2006 í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×