Lífið samstarf

Match Attax Extra við­burður í Fót­bolta­landi á laugar­daginn!

Artasan

Match Attax Extra spilin eru loksins komin út! Match Attax hafa eflaust ekki farið framhjá mörgum en safnspilin hafa notið mikilla vinsælda hér á Íslandi sem og víða í heiminum. Spilin innihalda leikmenn í Meistara-, Evrópu- og Sambandsdeildinni.

Match Attax hafa nú loks gefið út Match Attax Extra spilin fyrir 23/24 tímabilið eftir að janúar glugginn lokaði. Eru spilin komin í allar helstu verslanir. Í fyrsta inn í sögu Match Attax innihalda pakkarnir núna einnig Meistaradeild kvenna. Núna getur þú því safnað öllum bestu leikmönnum heims á sama stað í sama fótboltapakka.

Match Attax Extra dagurinn

Næstkomandi laugardag, 9. mars, fer fram í fyrsta sinn á Íslandi Match Attax Extra dagurinn, en viðburðinn verður haldinn í Fótboltalandi í Smáralind á milli klukkan 14 og 16. Það verður sannkölluð veisla í Fótboltalandi en á svæðinu verða m.a. áhrifavaldarnir Eggert Unnar, May Sigurjónsdóttir, Óli Jóhann og Ezzi sem eru betur þekkt á samfélagsmiðlinum TikTok. Bræðurnir Matthías og Hálfdán í hljómsveitinni VÆB sem hafa stigið upp síðustu daga í kjölfar Söngvakeppninnar munu einnig mæta á viðburðinn og taka lagið fyrir gesti og gangandi. Þetta er eitthvað sem þú villt ekki missa af!

Veglegir vinningar í boði

Á viðburðinum verður ýmislegt um að vera, en þar munu fara fram ýmsar skemmtilegar þrautir og keppnir á borð við fótbolta Kahoot Quiz, fótboltaþrautir og fleira þar sem veglegir vinningar frá Match Attax, Smárabíói og Fótboltalandi verða í boði fyrir sigurvegara og stigahæstu keppendur. 

Einnig fer fram Fifa mót þar sem tveir einstaklingar keppa í einu og vinningshafinn í hverjum leik fær gjöf frá Match Attax. Öll þau sem taka þátt í Fifa mótinu hafa möguleika á að skrá sig í pott og verður einn heppinn einstaklingur dreginn út sem fær að vinning glænýja Playstation 5 tölvu frá Senu. Á viðburðinum verður einnig sérstakur afsláttur af Match Attax Extra fótboltaspilunum.

Fyrstu 240 sem mæta á viðburðinn fá promo pakka af Match Attax spilunum ásamt nýjasta Powerade-inum „Golden Mango“ sem væntanlegur er í búðir.

Dagskrá viðburðarins:

14:00 – Match Attax dagurinn hefst. Fyrstu 240 gestir frá promo pakka og Powerade.

14:30 – Fótabolta Kahoot Quiz

15:00 – 16:00 – Fótboltakeppni og Fifa mót

16:00 – VÆB taka lagið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×