Innlent

Funda ekki í dag

Árni Sæberg skrifar
Frá fundi breiðfylkingarinnar og SA þegar allt lék í lyndi.
Frá fundi breiðfylkingarinnar og SA þegar allt lék í lyndi. Vísir/Einar

Breiðfylkingin svokallaða og Samtök atvinnulífsins funda ekki í dag. Boðað hefur verið til fundar í fyrramálið.

Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við fréttastofu. 

Eftir töluverða bjartsýni í kjaraviðræðunum í upphafi vikunnar urðu óvæntar vendingar í þeim í gær. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, mætti ekki til fundar hjá ríkissáttasemjara í gærmorgun en fulltrúar Starfsgreinasambandsins og Samiðnar mættu þó til fundar í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins við breiðfylkinguna svokölluðu.

Allt í uppnámi

Sólveig Anna sagði í samtali við fréttastofu í gær að Samtök atvinnulífsins hefðu hleypt kjaraviðræðum í uppnám í fyrradag með því að vilja skyndilega taka upp þegar samþykktan launalið.

Það sagði Sólveig Anna hafa verið gert til þess að veita hálaunahópum innan ASÍ prósentutöluhækkanir. Þá hafi SA gert kröfu um að Efling samþykki launalækkanir ákveðinna hópa.

Þeir Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sögðu báðir við fréttastofu í gær að staðan í viðræðunum væri flókin.

„Við erum samstíga í að okkur er gjörsamlega misboðið yfir þeirri stöðu sem er komin upp,“ sagði Vilhjálmur sem vildi þó ekki útskýra nánar hvað í því felst enda eigi viðsemjendur að vera í fjölmiðlabanni.

Aðgerðir í kortunum

Atkvæðagreiðsla um verkfall hjá ræstingafólki innan Eflingar hefst á mánudaginn kemur. Verði sú tillaga samþykkt mun ræstingafólk sem er í Eflingu leggja niður störf þann 18. mars næstkomandi.

Þetta var ákveðið á fundi samninganefndar Eflingar í gærkvöldi að því er RÚV greinir frá.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×