Bíó og sjónvarp

Costner veðjar öllu á sjálfan sig

Samúel Karl Ólason skrifar
Costner

Leikarinn og leikstjórinn víðfrægi, Kevin Costner, birti á dögunum stiklu fyrir kvikmyndina Horizon: An American Saga Chapter 1. Myndin er sú fyrsta af fjórum sem Costner fjármagnaði sjálfur, skrifaði, leikur aðalhlutverkið í og leikstýrir.

Costner segist hafa veðsett heimili sitt til að fjármagna myndirnar og kom fram við skilnað Costner og Christine Baumgartner í fyrra að hann hefði eytt meira en tuttugu milljónum dala af eigin peningum í framleiðslu myndanna.

Verkefnið á sér áratuga langa sögu og er fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir frá Open Range árið 2003.

Samkvæmt frétt Hollywood Reporter leit hugmyndin um HASC fyrst dagsins ljós árið 1988, áður en Costner gerði óskarsverðlaunamyndina Dansar við úlfa. Á einum tímapunkti tóku forsvarsmenn Disney að sér að framleiða myndina en ekki rættist úr því.

Fyrstu tvær myndirnar af fjórum verða frumsýndar í kvikmyndahúsum, með einungis tveggja mánaða millibili, sem er fátítt í Hollywood. Myndirnar fjórar spanna fimmtán ára tímabil fyrir og eftir þrælastríðið og fjalla um fólksflutninga til vesturhluta Bandaríkjanna.

Meðal þeirra sem leika í myndinni eru Sam Worthington, Sienna Miller, Luke Wilson, Giovanni Ribisi, Will patton, Jena Malone, Michael Rooker, Thomas Haden Church og margir fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×