Körfubolti

Hilmar drjúgur í sigurleik Münster

Siggeir Ævarsson skrifar
Hilmar í leik með Munster.
Hilmar í leik með Munster. Heimasíða Uni Baskets Münster

Hilmar Pétursson og félagar í Uni Baskets Münster unnu 90-83 heimasigur á VfL SparkassenStars Bochum í þýsku B-deildinni í körfubolta í kvöld.

Hilmar lét töluvert að sér kveða í leiknum og skoraði 17 stig og var þriðji stigahæsti leikmaður liðsins. Hann bætti við þremur stoðsendingum og fjórum fráköstum á rúmum 27 mínútum spiluðum.

Sigurinn í kvöld var afar mikilvægur fyrir Uni Baskets Münster en liðið er í 8. sæti ProA deildarinnar, sem er síðasta sætið sem gefur sæti í umspili um sæti í úrvalsdeild að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×