Lífið

„Bestu 730 dagarnir“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Íris Tanja og Elín Ey eru án efa eitt glæsilegasta par landsins.
Íris Tanja og Elín Ey eru án efa eitt glæsilegasta par landsins. Íris Tanja

Leikkonan Íris Tanja Flygenring birti fallega myndafærslu af sér og unnustu sinni, tónlistarkonunni Elínu Eyþórsdóttur, í hringrásinni á Instagram í gær í tilefni af tveggja ára sambandsafmæli þeirra sem þær telja í dögum.

„Bestu 730 dagarnir elsku fallega ástin mín. Elska þig,“ skrifar Íris við myndirnar. 

Elín skrifaði sömuleiðis falleg orð til unnustunnar í tilefni dagsins:

„730 dagar með bestu fallegustu, hæfileikaríkustu, skemmtilegustu, geggjuðustu konu í heimi. 

Þakklætið er óendanlegt. Elska þig Íris Tanja.“
Íris Tanja
Íris Tanja

Elín og Íris Tanja opinberuðu samband sitt í mars 2022, stuttu eftir að Elín Sigraði Söngvakeppni sjónvarpsins ásamt systrum sínum með laginu Með hækkandi sól. Þær systur kepptu síðan fyrir Íslands hönd í Eurovision í Tórínó í maí.

Parið trúlofaði sig í október sama ár. 


Tengdar fréttir

„Takk fyrir að vera til“

Íris Tanja Flygenring leikkona sendi unnustu sinni og tónlistarkonunni Elínu Eyþórsdóttur, þekkt sem Elín Ey, hjartnæma afmæliskveðju í hringrásinni á Instagram í gær. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×