HK-ingar að slíta sig frá fallsvæðinu og Valsmenn völtuðu yfir Selfoss Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. febrúar 2024 21:19 HK vann mikilvægan sigur í kvöld. Vísir/Vilhelm HK vann mikilvægan eins marks sigur er liðið heimsótti KA í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 26-27. Á sama tíma vann Valur 17 marka risasigur gegn Selfyssingum, 38-21.
Eins og lokatölurnar gefa til kynna var leikur KA og HK jafn og spennandi frá upphafi til enda. Liðin skiptust á að hafa forystuna framan af í fyrri hálfleik, en HK-ingar náðu þriggja marka forskoti í stöðunni 8-11 þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. HK-ingar voru sterkari aðilinn á lokamínútum hálfleiksins og liðið leiddi með sex mörkum þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja, staðan 10-16. Gestirnir í HK náðu mest sjö marka forystu í upphafi síðari hálfleiks og leiddu enn með fimm mörkum þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Heimamenn söxuðu hins vegar jafnt og þétt á forskot HK og minnkuðu muninn niður í eitt mark þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir. Liðin skoruðu hins vegar aðeins eitt mark hvort það sem eftir var og HK vann að lokum nauman eins marks sigur, 26-27. HK-ingar eru nú með níu stig í níunda sæti deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið. KA-menn sitja sæti ofar með einu stigi meira. Í leik Vals og Selfoss var hins vegar engin spenna. Valsmenn skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins og settu strax tóninn. Heimamenn höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda og leiddu með níu mörkum í hálfleik, 18-9, og unnu að lokum afar sannfærandi 17 marka sigur, 38-21. Valsmenn sitja nú í öðru sæti Olís-deildarinnar með 22 stig eftir 14 leiki, þremur stigum á eftir toppliði FH. Selfyssingar sitja hins vegar sem fastast á botninum með sex stig.
Olís-deild karla HK UMF Selfoss Valur KA Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn LASK - Liverpool | Mæta laskaðir til leiks Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Sjá meira