Handbolti

„Frakkarnir það eina sem stóð í vegi fyrir því að við yrðum besta lið í heimi“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann frækinn eins marks sigur gegn Frökkum á Ólympíuleikunum í handbolta 2012.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann frækinn eins marks sigur gegn Frökkum á Ólympíuleikunum í handbolta 2012. EPA/SRDJAN SUKI

Hreiðar Levý Guðmundsson og Bjarni Fritzson, fyrrverandi landsliðsmenn í handbolta, voru gestir í síðasta þætti Besta sætisins eftir tap Íslands gegn Frakklandi á EM í gær.

Þeir félagar rýndu í leik íslenska landsliðsins gegn því franska eftir tapið í gær ásamt Stefáni Árna Pálssyni, stjórnanda þáttarins.

Ísland og Frakkland hafa oft mæst áður á handboltavellinum og oft hafa liðin tvö boðið upp á hörkuleiki. Áður en þremenningarnir fóru í það að rýna í leik gærdagsins bað Stefán Árni þá Hreiðar og Bjarna að rifja upp sinn eftirminnilegasta leik gegn Frökkum.

„Ég var nú oftast bara uppi í stúku að horfa á þessa leiki,“ grínaðist Bjarni áður en Hreiðar greip boltann á lofti.

„Við eigum náttúrulega úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum [2008] sem við töpum, en svo vinnum við þá 2012 í London í hörkuleik með einu marki,“ sagði Hreiðar.

Bjarni rifjaði þá upp hvað Guðmundur Guðmundsson, þáverandi landsliðsþjálfari, hafði gert til að undirbúa liðið fyrir leiki gegn bestu handboltaþjóðum heims.

„Það var svolítið merkilegt því Gummi Gumm var búinn að tala um að Frakkarnir væru það eina sem stæði í vegi fyrir því að við yrðum besta lið í heimi. Hann var markvisst búinn að vinna í því að spila æfingaleiki við þá og gera allt til að undirbúa sig eins vel og hann gæti gegn þeim. Hann var búinn að leggja svo mikla áherslu á það þannig að ná að klára þennan leik á Ólympíuleikunum 2012 var risa, risastórt,“ sagði Bjarni, en umræðuna, sem og þáttin í heild sinni, má hlusta á hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×