Handbolti

„Þetta er sami grauturinn í annarri skál“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson er enn ósigraður sem landsliðsþjálfari Íslands.
Snorri Steinn Guðjónsson er enn ósigraður sem landsliðsþjálfari Íslands. vísir/vilhelm

Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Leipzig í Þýskalandi, segist ekki sjá miklar breytingar á leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta frá síðustu mótum.

Ísland vann Svartfjallaland með minnsta mun, 30-31, í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í gær. Íslendingar eru með þrjú stig í C-riðli og mæta Ungverjum í lokaumferð riðlakeppninnar annað kvöld. Ísland þarf að vinna leikinn til að fara með tvö stig inn í milliriðla.

Rúnar fylgdist vel með leiknum gegn Svartfjallalandi í gær og gaf strákunum í hlaðvarpinu Besta sætið skýrslu um hann.

„Ég sá æsispennandi leik. Það er fyrir öllu að við unnum leik. Það er það sem maður tekur út úr þessu. Það er það sem skiptir mestu máli. Allt annað er hægt að spekúlera um. En ég held að allir hafi vonast eftir og reiknað með betri leik en við sýndum,“ sagði Rúnar. Að hans mati vantar ýmislegt upp á í íslensku sókninni.

„Mér finnst sóknarleikurinn ekki vera nógu góður. Hann er of staður. Ég held að það sé deginum ljósara að Gísli Þorgeir [Kristjánsson] sé ekki búinn að ná fyrri styrk. Það er alveg á hreinu. Menn sjá það og bíða flatari á hann. Hann er ekkert að fara að skjóta fyrir utan sex metrana og þetta verður erfiðara gegn betri andstæðingum því Svartfjallaland spilaði alls ekki góða vörn. Þetta var eiginlega veisla en við náðum ekki að nýta okkur það.“

Rúnar hefur ekki séð mikla breytingu á leik íslenska liðsins frá síðustu mótum.

„Það er ekki enn allt að smella hjá okkur, því miður. Þetta er sami grauturinn í annarri skál. Þetta er bara framhald frá síðustu mótum. Við verðum að fara að skipta um gír,“ sagði Rúnar.

Þrátt fyrir misjafna spilamennsku það sem af er móti býst Rúnar við því að íslenska liðið fari áfram í milliriðla.

„Ég held að við förum áfram. Það kemur bara næsti leikur og það er alveg hægt að byrja upp á nýtt. Ég held að við séum ekki að spila mikið verr en þetta. Kannski jafn illa en ekki verr,“ sagði Rúnar.

Þáttinn má heyra í spilaranum að ofan. Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum, t.a.m. á Spotify hér. Hver einasti leikur Íslands á EM verður gerður upp af sérfræðingum í Besta sætinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×