Menning

Útkallsbók í topp tíu eins og svo oft áður

Jakob Bjarnar skrifar
Óttar Sveinsson fagnar um þessar mundir 30 ára útgáfuafmæli. Útkallsbækur hans hafa verið sigurganga en hann er að framleiða þætti sem byggja á bókunum en þeir verða sýndir á Vísi.
Óttar Sveinsson fagnar um þessar mundir 30 ára útgáfuafmæli. Útkallsbækur hans hafa verið sigurganga en hann er að framleiða þætti sem byggja á bókunum en þeir verða sýndir á Vísi. vísir/vilhelm

Það er helst að telja megi til tíðinda hversu tíðindalaus Bóksölulisti bókaþjóðarinnar er, eftir aðra helgi desember mánaðar.

Þetta segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút. 

Nýr bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda lítur nú dagsins ljós - eini listinn sem mark er á takandi. Með fullri virðingu; þó margir höfundar vilji tengja við lista Eymundsson eru ekki mörg seld eintök bak við þann lista. Hér eru hins vegar allir útsölustaðir landsins undir. 

Það hversu staðlaður listinn er segir í raun þá döpru sögu að bóksala er ekki mikil, enginn er að brjótast fram og í gegn. Varla hægt að segja að bóksala sé komin almennilega í gang. Og þar eru ýmis atriði sem hafa áhrif, bókin er í mikilli samkeppni við snjalltæki ýmis, Storytel; nokkuð sem Písa-könnunin bergmálar svo með ömurlegri frammistöðu Íslendinga. Tungumálið á undir högg að sækja og þó þar brjóti ekki á bóklestri einum og sér skiptir hann máli.

Sérlega íhaldssamir bókakaupendur

Bryndís vill hins vegar ekki vera eins upptekin af sölutölum og blaðamaður. En henni finnst athyglisvert hversu staður listinn er að þessu sinni. 

„Því til sönnunar þá er hér línurit sem sýnir stöðu helstu höfunda á listanum á svipuðum tíma síðustu fjögur ár og nú. Efsta línan, kvarðinn 100, gefur fyrsta sæti, 95 annað sæti og svo koll af kolli. 

Þannig sjáum við að Sæluríki hefur komið Arnaldi aftur í efsta sæti eftir að hafa vikið fyrir Snertingu Ólafs Jóhanns árið 2020, Gættu þinna handa eftir Yrsu 2021 og Reykjavíkurbókar Ragnars og Katrínar Jakobsdóttur í fyrra. Ragnar nær ekki að halda toppsætinu án Katrínar og missir heldur flugið á meðan Yrsa sækir að Arnaldi og lesendahópur Stefáns Mána dafnar ágætlega,“ segir Bryndís.

Aðeins tveir skáldsagnahöfundar á lista

Af glæpasagnahöfundum frátöldum þá ná aðeins tveir skáldsagnahöfundar bók inn á topp 20 listann þessa vikuna, Ólafur Jóhann má vel við una með Snjó í paradís í fjórða sæti, einu sæti neðar en hann var í fyrra, þegar Játning sat í þriðja sæti. Það þarf hins vegar að fara alla leið niður í 20. sæti til að finna næsta skáldverk, Náttúrulögmál Eiríks Arnars Norðdahl. 

„Það er ekki einsdæmi að svo fá skáldverk nái inn á topp listann, þau hafa verið á bilinu tvö til sex á þessum árstíma undanfarin ár en alla jafna er það vísbending um að salan dreifist á marga titla þegar svo fá skáldverk ná mikilli sölu,“ segir Bryndís.

Útkallsbækurnar sitja að vanda í efstu sætum listans og eiga sinn dygga lesendahóp líkt og sést á gulu línunni í línuriti Bryndísar. 

„Miðað við gengi síðustu ára þá virðist sala bókarinnar Mayday - erum að sökkva! vera yfirmeðallagi í ár en bókaflokkurinn fagnar einmitt stórafmæli með þessari þrítugustu bók Óttars Sveinssonar.“


20 mest seldu bækurnar 4. -10. desember

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  4. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  5. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  6. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  7. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  8. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  9. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  10. Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  11. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  12. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  13. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  14. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
  15. Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
  16. Gleðilega jólahátið - þrautabók - Unga ástin mín
  17. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  18. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  19. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  20. Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl

Skáldverk

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  5. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  6. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  7. Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl
  8. Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  9. Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
  10. Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir
  11. DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
  12. Ból - Steinunn Sigurðardóttir
  13. Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  14. Jólabókaklúbburinn - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
  15. Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  16. Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir
  17. Maðurinn frá São Paulo - Skúli Sigurðsson
  18. Dulstirni / Meðan glerið sefur - Gyrðir Elíasson
  19. Högni - Auður Jónsdóttir
  20. Heimsmeistari - Einar Kárason

Fræðirit, handbækur og ævisögur

  1. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  2. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  3. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  4. Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
  5. Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst
  6. Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  7. Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
  8. Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen
  9. Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
  10. Í eldhúsinu með Hrefnu Sætran - Hrefna Sætran
  11. Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy
  12. Hekla - Elsa Harðardóttir
  13. Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
  14. Björn Pálsson : Flugmaður og þjóðsagnapersóna - Jóhannes Tómasson
  15. Hetjudáðir á hafi úti - Steinar J. Lúðvíksson
  16. Eimreiðarelítan: Spillingarsaga - Þorvaldur Logason, ljósm. Kristján Logason
  17. Jökulsævintýrið - Jakob F. Ásgeirsson
  18. Prjónadraumar - Sjöfn Kristjánsdóttir
  19. Völvur á Íslandi - Sigurður Ægisson
  20. Fornbátar á Íslandi - Helgi Máni Sigurðsson

Barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  2. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  4. Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  5. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  6. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
  7. Gleðilega Jólahátið - þrautabók - Unga ástin mín
  8. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  9. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  10. Snúum og leikum, teningaspil - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  11. Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
  12. Jólasyrpa 2023 - Walt Disney
  13. Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  14. Blæja (Bluey) -Límum þetta! - Límmiðabók
  15. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson
  16. Verstu gæludýr í heimi - David Walliams
  17. Eldur - Björk Jakobsdóttir, myndh. Freydís Kristjánsdóttir
  18. Skólaslit 2 - Dauð viðvörun - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates
  19. Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
  20. Depill á jólunum - Eric Hill, þýð. Jakob F. Ásgeirsson

Uppsafnaður listi frá áramótum

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  5. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  6. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  7. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  8. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  9. Líkaminn geymir allt - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
  10. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  11. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
  12. Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
  13. Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
  14. Lungu - Pedro Gunnlaugur Garcia
  15. Blóðmáni - Jo Nesbø, þýð. Halla Kjartansdóttir
  16. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  17. Bella gella krossari - Gunnar Helgason
  18. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  19. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
  20. Verstu gæludýr í heimi - David Walliams

Tengdar fréttir

Orri óstöðvandi sækir að kónginum

Nýr bóksölulisti lítur dagsins ljós. Menn eru að koma sér fyrir. Eins og oft áður er Arnaldur Indriðason efstur, bæði í sölu þeirrar viku sem listinn tekur til sem og á uppsöfnuðum lista frá áramótum. En rithöfundar eru að koma sér fyrir á listum og skapa sér vígstöðu.

Arnaldur á toppnum og fátt fær því breytt

Þá lítur fyrsti jóla-bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda ljós. Listi vikunnar nær yfir tímabilið 1.-26. nóvember en fram að jólum verður listinn svo tekinn saman vikulega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×