Handbolti

„Lærum eitt­hvað nýtt á hverjum degi“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson íbygginn á hliðarlínunni á leiknum við Slóveníu.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson íbygginn á hliðarlínunni á leiknum við Slóveníu. EPA-EFE/Beate Oma Dahle

Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson segir að leikmenn og starfsteymi íslenska kvennalandsliðsins læri margt á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta. Ísland mætir Ólympíumeisturum Frakka klukkan 17:00 í dag.

Ísland þurfti að þola svekkjandi tap fyrir Slóveníu í fyrradag þar sem slæmur upphafs- og lokakafli hafði mikið að segja. 

„Við erum búin að fara aðeins yfir klippur og reynum að læra af leiknum (við Slóveníu) sem er mjög mikilvægt fyrir okkur á þeirri vegferð sem við erum á. Það er bara áfram gakk og annar leikur strax. Þetta er ákveðin kúnst sem fylgir því að vera á svona stóru móti og við lærum eitthvað nýtt hérna á hverjum degi,“ segir Arnar.

Liðið í lærdómsferð

Ísland fékk á sig tíu mörk af línunni í gær og fjölda úr hraðaupphlaupum eftir tapaða bolta. Arnar nefnir lærdóm en hvaða lærdómur er það sem helst þarf að draga af leiknum?

„Við þurfum í öllum þáttum leiksins að halda áfram að bæta við. Það er alveg rétt að við erum fá töluvert af mörkum á okkur úr hröðum upphlaupum þar sem við erum að tapa boltanum. Þetta helsti munurinn á þessum toppgæðabolta, refsingarnar eru harðari í hvert skipti sem þú tapar boltanum,“

„Við þurfum að læra helling og skoða helling en það var líka vitað fyrirfram að þetta yrði lærdómsferð og við lærðum helling af þessum leik í gær,“ segir Arnar.

Klippa: Læra margt á hverjum einasta degi

Frammistaða fram yfir úrslit

Ljóst er að verkefnin gerast ekki mikið erfiðari en að mæta Frökkum. En getur Ísland þá farið heldur pressulaust inn í leik dagsins?

„Við eigum ekki að vera að stressa okkur á einu né neinu hvað varðar úrslit í þeim leik. Við eigum að setja þá pressu á okkur að standa okkur og halda áfram að bæta okkar leik. Það er pressan sem við setjum alltaf á okkur að mæta hundrað prósent inn í leikina, að gera okkar besta og vera besta útgáfan af sjálfum okkur. Við gerum það á morgun og sjáum hversu langt það fer með okkur,“ segir Arnar.

Ísland mætir Frakklandi klukkan 17:00 í DNB-Arena í Stafangri í dag. Vísir fylgir liðinu eftir hvert fótmál og færir allar nýjustu fréttir af liðinu eftir því sem þær berast.


Tengdar fréttir

Afmælisbarnið þurfti að slökkva á símanum

Óhætt er að segja að Elín Jóna Þorsteinsdóttir, markvörður Íslands, hafi átt eftirminnilegan afmælisdag í gær er hún þreytti frumraun sína á heimsmeistaramóti.

Bitist um tónlistina: „Hún byrjaði að spila kántrí!“

Skiptar skoðanir eru um tónlist innan íslenska landsliðsins sem hefur keppni á HM á fimmtudaginn kemur. Herbergisfélagarnir Sandra Erlingsdóttir og Andrea Jacobsen segja hvora aðra vera með versta tónlistarsmekkinn í liðinu.

PlayStation eða fyrirtækisrekstur?

Það er misjafnt hvað landsliðskonur kvenna í handbolta gera til að stytta sér stundir á meðan þær eiga dauðan tíma milli æfinga og funda í aðdraganda heimsmeistaramótsins sem hefst með leik við Slóveníu á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×